Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1949, Page 48

Eimreiðin - 01.10.1949, Page 48
284 TRÝNAVEÐUR EIMREIÐIN „Og báð’ir verðið þið dauðir á undan mér, en skammt má sköp- um renna!“ mælti Gísli prúði, og var þá sem liagl hrykki af augum hans. En Gísli prúði átti ekkert skip sjálfur, þessi mikli og al- ræmdi sægarpur, sem þó ætíð var formaður og aflakóngur, hvar sem hann reri. Hann var svo góðsamur og greiðugur, að ekki mátti hann aumt sjá. Hann leyfði oft fátækum mönnum að fljóta með sér, þó hann hefði fullskipað lirvals hásetum, og gaf þeim allan aflann. Og margsinnis skipti hann öllum hlut sínum milli fátæklinga og gekk sjálfur frá með tvær hendur tómar. En allt fór eins og þeir sögðu livor öðrum, þessir miklu formenn. Báðir dóu þeir á undan Gísla, en liann var af einliverjum ástæðum neyddur til að taka við formennsku á Yarginum, og þar fórst liann í fyrstu sjóferðinni á því skipi, sá mikli sægarpur, með öll- um sínum hásetum, allt úrvalaliði. Sást aldrei neitt síðan, hvorki af skipi eða mönnum. Með lionum fórst faðir minn, frá mér og okkur börnum sínum, öllum kornungum. Við fórum á sveitina. Þess vegna varð ég aldrei að manni. Ég var boðinn upp, eins og skranvara, og það oftar en einu sinni. En sá var þó munurinn, að ég var ætíð sleginn lægstbjóðanda og því talinn miklu minna virði en almennilegt rusl og skran, sem þó ávallt er slegið hæst- bjóðanda. Ég átti illa ævi, eins og á mér sér, enda varð ég aum- ingi og mannleysa. En blessaður sé Gísli prúði! Og blessuð sé minning hans! Éfí sá hann á sjónum í dag! Og það er óvíst, að við værum nú hér, hefði hans ekki notið við!“ Og nú tárfelldi gamli maðurinn og tók að raula vísu, er ég liafði heyrt liann að minnsta kosti hundrað sinnum áður raula fyrir munni sér, en þó ávallt með nýrri og nýrri stemmu, er hann bjó til sjálfur, — allt eftir því hvernig í honum lá: „öldin lúða lending fann, En Gísla prúða vanta vann lamin úða drifi. — og Varginn súða úr Rifi“. Franzmennirnir voru liættir að „bonna“ og farnir. Og nú koin kaffið og formaðurinn með hálfflösku af brennivíni: „Miklir andskotans þjófar að þeir eru orðnir, þessir kaupmenn! Það kostar nú bara 50 aura upp á glasið, móti innskrift!“ „Er þá ekki glerið innifalið í því verði?“ spurðu þeir háðir í senn, Isak og Jakob, en Abraliam steinþagði.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.