Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1949, Side 58

Eimreiðin - 01.10.1949, Side 58
294 STJÓRNLÖG E'MREIÐIN úrlausnar á hverjiun tíina. Viðhorf til mála er breytilegt eftir tíma og ástæðum. Að þetta sé rétt, sannast ótvírætt af nærtekinni reynslu. Allt frá því er þjóðin fékk sérmál sín leyst undan íhlutun og yfirráðum Dana — og reyndar allt frá endurreisn alþingis —■ og þar til er valdstreitu liinna skorðuðu stjórnmálaflokka tók að gæta við úrlausnir alþjóðarmála — voru þau leyst á eðlilegan, og hinn eina lieilbrigða hátt — með meirihlutaafgreiSslu frjálsra manna á frjálsri þjó&arsamkomu, þ. e. með meiri hluta fylgi vh5 málin, eins og þau horfa við á líðandi stund. Stjórnarkreppur þekktust ekki, né óliagræn afgreiðsla þjóðhagsmála. Á hverju þingi myndaðist á eðlilegan hátt meiri liluti og minni liluti uro þau höfuðmál og stefnur, sem kosningar höfðu snúizt um, og stjórnarforusta byggðist aftur á þeim meiri hluta. Stjórnin réð afgreiðslu fjárlaga og bar ábyrgð á þeim. Um minniháttar niál, sem fram komu á þingum, voru þingmenn jafnt eftir sem áður óbundnir. Þetta eitt sœmir frjálsri þjóS í frjálsu landi. Fyrir þessu og fleiru, sem hér er sagt, hef ég gjört nánari grein í riti mínu, Refskák stjórnmálaflokkanna. Það er þess vegna langt frá því, að fastir og skorðaðir stjórn- málaflokkar séu stjórnarfarsleg nauðsyn. Þeir eru þvert á nióti sá meinvaldur í stjómmálalífinu og þjóðlífinu, sem öllu stjórn- málalegu öngþveiti veldur, óhagrænni afgreiðslu mála og stjórn- arkreppum. Það mætti nú vera orðið augljóst mál og óvefengjan- legt, að framgjarnir og valdsæknir menn — flokksforingjarnir — nota flokkana og flokkakerfin aðeins sem tæki sín til að lyfta ser til áhrifa og valda. Til þess að ná aftur þeirri skipan í þessu efni, sem áður var, þarf aðeins og fyrst og fremst að breyta kjördæmaskipuninni alfarið í einmenningskjördæmi. Skiftir þá ekki máli, þótt kjor- dæmin séu misfjölmenn. Eðlilegast er og þá, að hvert sjálfstæt1 lögsagnarumdæmi kjósi einn þingmann. Til samkomulags kænii þó til álita, að liöfuðstaður landsins, sökum fjölmennis, fengi kjósa 2—4 þingmenn, þó því aðeins að lionum væri skipt í ja^n mörg einmennings kjördæmi. Með þessari skipan næðist einnig á eðlilegan hátt það jafnvægi, sem menn hyggja að næðist með skiptingu landsins í fjórðunga, fimmtunga eða sjöttunga. Með svona kjördæmaskipun veldust á þjóðþingið þeir inenn,

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.