Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1949, Side 60

Eimreiðin - 01.10.1949, Side 60
296 STJÓRNLÖG eimreiðin andí stjómarfars. Skal það nú að lokum dregið sanian í stuttu máli. 1. Sérstakt þjóðþing á Þingvelli við Öxará á að setja liinu endur- heima þjóðveldi stjórnlög, en ekki alþing. 2. Gæta þarf þess, að stjórnarskrá og kosningalög gefi kerfis- bundnum stjórnmálaflokkúm engin sérréttindi, né sérrétt- indaaðstöðu, við framboð og kosningar til alþingis. 3. Til tryggingar gegn því, að kerfisbundnir, skipulagðir stjórn- málaflokkar nái aðstöðu til að berjast og semja sín á milb um yfirráðin yfir þjóðveldinu, þurfa þingmenn að vera alfarið kosnir í einmenningskjördæmum. 4. Kjördæmin séu miðuð við skiptingu landsins í sjálfstæð lög- sagnarumdæmi, sbr. þó það, sem fyrr var sagt um undan- tekningu fyrir liöfuðstað landsins. 5. Setja þarf fastari skorður en verið liefur gegn því, að alþing óg ríkisstjórn gangi ekki á snið við stjórnarskrána. 6. Ríkisforsetanum sé gefið valdsvið og vald í líkingu við það, sem er í Bandaríkjum Norður-Ameríku. NIÐURLAGSORÐ. Það má vera augljóst mál, að litlu þjóðríki sem voru, lientar ekki að ala innbyrðis sundurþykki og úlfúð, sem jafna má við borgarastyrjöld, um völdin í landinu. Ekkert ríki fær staðizt, sem er sjálfu sér sundurþykkt. Sameinaðir stöndum vér, sundraðir föllum vér. Stafabindið er sterkt, meðan það er bundið saman, en veikt og brotbætt, sé það leyst sundur. Að lyktum þetta: Hversu vel sem gengið væri frá þjóðveldislögunum að öðru leyti, er ekki að vænta heilbrigðra og áfallalausra stjórnliátta, ef látin verða leika áfram lausum liala skipulögð, föst kerfi lieift- úðugra valdsóknarflokka, sem keppa um stjórnvölinn. Með þvi er þjóðareiningin rofin og þjóðríkinu liáski búinn.

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.