Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1949, Side 64

Eimreiðin - 01.10.1949, Side 64
300 DROTTNING ÖRBIRGÐAR OG ÆVINTÝRA EIMREIÐIN En stundum gat fullorðna fólkið ekki á sér setið né hallað sér út af í rökkrinu, lieldur settist það líka hjá Brandþrúði og lilust- aði einnig á ævintýri hennar og sögur. En þá var samt oftar beðið um þjóðsögur, — og stundlun um draugasögur. Þá þrýstu börmn sér þéttar upp að Brandþrúði gömlu og héldu sér fast í liana á alla vegu. Þau minnstu smeygðu sér jafnvel upp í fang hennar. Og faðmur Brandþrúðar gömlu stóð þeim alltaf opinn, hlýr og móðurlegur. Þetta voru allt börnin hennar, hvar sem hún koni. önnur böm átti hún ekki. Enda var hún livorki gift né við karl- mann kennd alla sína löngu ævi.-------- Það var ekki langur spretturinn fyrir börnin á móti þeim Brandþrúði gömlu og Þráni. En þá var samt yngsta telpan komin til Iiennar og búin að ná í aðra höndina á henni. Og henni sleppt1 hún ekki aftur. Brandþrúður gamla laut niður og kyssti öll börnin innilega. Bjart og kringlótt andlit hennar Ijómaði broshýrt og blítt út úr öllum dúðanum, og hver hrukka þess var sem gullin rák í gömlu og máðu bókfelli með skrautlegu munkaletri í hverri línu. Síðan hengdu börnin sig öll utan í hana, hvar sem taki varð náð. Og að lokum varð Brandþrúður gamla að taka minnstu telpuna upp í fang sér til að rýma til fyrir hinum. Og samt skorti hana anga og útlimi, svo að öll fengju nægilega traust tak og eignarliald á persónu liennar. En nú var stutt eftir til bæjar. Húsbændurnir höfðu fengið pata af, hver væri hér á ferð, og voru nú komin út til að taka á móti henni og leiða liana inn í bæinn. -----Að klukkustund liðinni var móttökunum lokið. Brand- þrúður hafði hresst sig vel á lieitu og góðu kaffi og góðri máltíð, sagt helztu fréttirnar og hallað sér síðan út af til að láta líða úr sér mestu þreytuna. Hún var komin alllanga leið norðan úr víkum, frá yzta nesi þar nyrðra, liafði farið að heiman bráðsnemma um morguninn. Færðin hafði verið allgóð, en þó þæfingur með köfl- um, og hríðarhraglandi öðru hvoru. Hún bjó ein með bróður sínum á útkjálkajörð og fór venjulega lítið að heiman, nema þessa árlegu útmánaðaför sína í Fjörðinn til að heilsa upp á kunn- ingjana og gleðja blessuð börnin. Hún var alltaf jafn velkomm og allsstaðar. Börnin hlökkuðu alltaf til komu hennar, er hún

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.