Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1949, Page 74

Eimreiðin - 01.10.1949, Page 74
310 RADDIR EIMREIÐIN þessu litla en ákaflega merkilega þjóðarbroti ósegjanlega mikils- verð aflsuppspretta. Við fögnum því, að deilumar eru nú hjaðn- aðar, og við dáumst að þeirri þrautseigju, sem enn streitist við að halda uppi íslenzkri kirkju í Vesturheimi. Við vildum gjarna mega vona að þetta mætti stuðla að því, að leyst yrði af hendi það mikilvæga starf, sem hér hefur verið ymprað á að vinna þyrfti. Því vestanhafs verður það að vinnast. Hitt verkið er að rita sögu ís- lenzkra bókmennta í Vesturheimi. Þar er ekki bara um merkilegt efni að ræða, heldur efni, sem efalítið er hreinlega einstætt í allri bókmenntasögu heimsins. Ef nokkur lieilbrigður metnaður er til í okkar þjóð, þá á Alþingi að koma hér til skjálamva —- og það án frekari tafar — með því að leggja fram það fé, er tryggi, að þetta verk verði unnið. Til skamms tíma styrkti Al- þingi (ekki af óihuga, heldur ein- skærum aulaskap) danskar bók- menntir fyrir austan Englands- haf, en lét sig engu skipta ís- lenzkar fyrir vestan Atlantshaf. Er þess að vænta að því liafi á fáum árum aukizt sá skilnings- þroski, að það sinni þessu máli? Ekki ættum við að örvænta um það. En hvað sem líður skilningt eða skilningsleysi þingsins, þá er það víst, að „þér vinn eg, konung- ur, það sem eg vinn" — að is- lenzkir höfundar vestra vinna fyrir okkur og hafa ávallt gert. Þó hefur okkur þólcnazt að láta vestur-íslenzk góðskáld, jafnvel stórskáld, eins og Stephan G. Step- hansson og Guttorm J. Guttorms- son, ólaunuð á meðan við hálaun- uðum lélega bögubósa hér heinia. Svona er jafnvel Njáll misvitur. Enn er það eitt, sem áð vísií er ekki eins nauðsynlegt, en ma þó teljast harla æskilegt, en þaá er, að ritaðar yrðu æviskrár Vest- ur-íslendinga, í líkingu við bók þá, er Brynleifur Tobíasson hefur samið um samtíð sína hér í heima- landinu. Einnig þetta yrði að ger- ast vestanhafs, og væri þó l‘ka það fyrir okkur gert miklu fremui en aðra. Þessar bendingar kann nú sum- um að þykja líkastar því sem vili1 ég segja löndum vestra fyrir verk' um. Ekki óttast ég, að þeir sj&lfir taki það þannig, enda munu þeir sjá þörfina fullt svo vel sem e<J' En það hefur verið siður þeirru> og sýnir manndóm, að bollaleggia ekki fyrri en þeir sáu mögideika til framkvæmda. Sn. J-

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.