Eimreiðin - 01.01.1954, Side 70
50
UM ÞJÓÐSÖGUR
eimreiðin
Til eru nokkur umburðarbréf frá sóknarpresti Galdra-Möngu,
séra Þorvarði Magnússyni, er meðal annarra hafði fremur hvatt
en latt brennslu föður hennar, og er á þeim bréfum að sjá, að sá
gamli sálusorgari hafi frekar verið farinn að sjá sig um hönd og
að minnsta kosti ekki talið Margréti hættulega galdranorn:
í Jesú nafni. í nafni guðssonar svara ég svo upp á kristilegt
efni, að ég trúlofa því öllum mínum vinum og velgjörðamönnum,
að ég vil enga ásókn veita né veita láta Margréti Þórðardóttur,
hvorki af mér né mínu sóknarfólki, heldur skal mér gleði vera
öllum þeim, sem henni liðsinna og gott til leggja, svo hún megi
opinberlega hjá frómu fólki augljóslega um gangast, það er í einu
orði skal talað og skrifað vera, að ég og mitt sóknarfólk skulum
aldrei þessa Margréti sturla eður til ills ýfa. Biðjum vér hana, að
allir vér séum bræður og systur í guði, bæði í lífi og dauða, fyrir
drottin vorn Jesúm Kristum. Amen.
Þorvarður Magnússon með eigin hendi.
Það skal vera gert, sem guð sjálfur hafði við mig talað og mér
ráðið, sem ég trúlofa um Margréti Þórðardóttur, og áður er skrif-
að. Guð gefi henni frið, sem ég vil sjálfur hafa í Jesú nafni. Geri
hún sjálf svo vel, sem mitt sinni þekkir og allt gott fólk. For-
þenkið mig ekki um neitt fals né svik upp héðan, að ég verði ei
trúr fundinn í greindu efni, og ég skil allra guðs barna góða um-
hyggju. Þorvarður Magnússon m. e. h.
Það er mín auðmjúk umbeiðni, að Margrét Þórðardóttir vilji
mér og öllum mínum vinum og vandamönnum svo vel sem ég og
mínir skulum henni vilja, hver um sig. Séum með hreinum hug
og hjarta innbyrðis, svo mun allt það vonda frá því líða fyrir þess
guðs tilhlutun, sem hjörtun rannsakar. Þ. M. m. e. h.
Guð almáttugur faðir allrar miskunnsemdar, hver að elskar allt,
það hann hefur skapað og sérdeilis mennina, sem hann hefur til
eilífs lífs fyrirhugað fyrir það blóðuga, dýrmæta offur, sinn elsku-
legan son Jesúm Kristum, vorn frelsara, hann vill ekki, að nokkur
fortapist, heldur fái og hreppi stundlegt farsælt líf og síðan eilíft
líf. Hann veit og bezt, að ég, hans bersyndugasti þræll, vil þar til
hjálpa, bæði mér og öllum mínum bræðrum og systrum, hvar og
í hverju það ég fæ mér við komið. Því sé það öllum góðum, guð-
hræddum mönnum vitanlegt, að mig sturlar það, að sú frávikna
manneskja úr minni sókn, Margrét Þórðardóttir, kemur ekki til
leiðréttingar við guð og menn. Því er nú guðhræddum mönnum