Eimreiðin - 01.01.1958, Blaðsíða 92
68
EIMREIÐIN
5.
Vegurinn frá Arnarvatni liggur sunnan Mývatns austur
sveitina um hraunageim mikinn, og væri það full æviraun
völdum rnanni að lýsa Mývatnssveit svo, að henni yrði full-
kosta myndin. Dimmdi þá óðum, en vegur var ljós og góður,
enda kirkjuvegur að og frá Skútustöðum, býli Víga-Skútu.
Skútustaðir eru höfuðból mikið og sitja yfir aðalgraslendi
sveitarinnar, sem Framengjar heita og liggja þar suður fra
bæjum. Ætla ég það vera þingeyskt fyrirbæri, að ein jörð
liafi afkomu mikils hluta sveitar í valdi sínu og noti þau skil-
yrði ekki eigingjarnlegar en svo, að nágrennið verði auðugt.
borið saman við aðrar sveitir, þrátt fyrri aðstöðu Skútustaða-
bænda til að skattleggja engjalitlar beitarjarðir umhverfis sig-
Ég þokaðist austur sveitina um eldbrunnið svæði milb
Mývatns og Framengja. Ráku þar ein undrin önnur: holar
gígblöðrur með gat í toppi, sandbárur í vatnsvíkum, vogar,
nes og stórar stripar í vatni og á landi. Reið ég um garð hja
Garði, en gat ekki beðið Þuru, þorði það ekki, þar sem hún
var reynd að því að hryggbrjóta menn með ljóðmælum, en
mér þótti slík þjónusta nógu ill, þótt í óbundnu máli væri-
Náði ég að Geiteyjarströnd fyrir miðri austurströnd vatnsins
um kvöldið og fékk þar góða gistingu okkur öllum.
Eitt þurfti ég að gera, sem ekki var daglegt starf mitt uni
þær mundir, en það var að hringja fram fyrir mig á leið og
panta ferju næsta dag. Bar ég mál á þá nauðsyn þegar inn korn,
því næsta dag beið mín ferð yfir Mývatnsöræfi og Jökulsá a
Fjöllum, en þar er ekki kallfæri af vesturbakka austur á Fjalla-
bæi, svo hægt sé að hrópa á ferju. Var mér þá sagt, að nætur-
gestur á austurleið væri í Reykjahlíð þessa nótt, og mundi
hann panta ferju þaðan, og þyrfti ég ekki annað en ætla mel
sama tíma og hann við ána. Talaði þá einhver heimamanna
við Reykhlíðinga og frétti um stefnumótið, og var það heldm
á fyrra fallinu að okkur þótti. Dreif þá heimamaður sig llt
til að bæta við hross mín heyi og meira vatni, því lítill tiC*1
mundi verða til að innbyrða morgungjöf að neinu marký-
Datt mér þá í hug, hvort stúlkur myndu hafa sama úrræÖ1
með mig og kveið fyrir, en þær munu hafa séð mig nægdeSa