Eimreiðin - 01.09.1967, Blaðsíða 31
Bréf til vinar
Frásögn af bók Svetlönu
eftir
Jón Magnússon.
Fyrir nokkrum vikum komu
út samtímis í mörgum löndum
endurminningar Svetlönu Alli-
lúévu, dóttur Stalíns, og mun
óhætt að spá, af ástæðum, sem
öllum eru kunnar, að þar sé
metsölubók á ferðinni, enda rif-
ust forlögin um útgáfuréttinn.
Hún kallar bókina Bréf til vin-
ar og tileinkar hana minningu
móður sinnar. Bréfin skrifaði
hún sumarið 1963 í þorpinu
Zukov skammt frá Moskvu, þá
37 ára að aldri, á slóðum, sem
hún var nákunnug frá barn-
æsku. Hún segist hafa verið 35
daga að skrifa þessi 20 bréf og
kveðst líta á þau sem játningu
og æskja þess, að hver, sem þau
les, líti svo á, að þau séu honum
skrifuð.
Svetlana segir frá æskuárum
sínum hjá foreldrum, sem hún
elskar, og hópi ættingja og vina,
sem smám saman týnir tölunni,
Um það leyti sem bókin BRÉF TIL
VINAR eftir Svetlönu Alliluévu,
dóttur Stalins, kom ut i haust i mörg-
um löndum samtímis, rceddi Jón
Magnússon, fréttastjóri Rikisútvarps-
ins, um bókina i þœttinum Viðsjá,
og gerði i stuttu máli glögga grein
fyrir helzta efni hennar. Hefur Eim-
reiðin fengið leyfi til þess að birta
þetta erindi og fer það hér á eftir.
án þess að barnið geri sér grein
fyrir því, hvað er að gerast. Hún
segir frá andláti móður sinnar,
sem hún heldur þá að hafi dáið
úr botnlangabólgu, og frá þeim
breytingum, sem við það urðu
á heimilishögum öllum. Gamalt
þjónustufólk hverfur af sviðinu,
hershöfðingi tekur við ráðs-
mennsku, ráðskonuna hefur
Berja sent brott, það er aðeins
gamla fóstran, sem Svetlana ann,
er fær að vera áfram, af því að
Svetlana fer að háskæla, þegar á
að reka hana, og faðir hennar
segir þá lögregluliðinu að láta