Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1967, Blaðsíða 32

Eimreiðin - 01.09.1967, Blaðsíða 32
212 EIMREIÐIN þá gömlu vera. Faðir hennar sést sjaldnar og sjaldnar. Hann hefur öðru að sinna en dóttur sinni, og hún veit ekkert um hans störf. Sautján ára verður hún ástfangin af fertugum kvik- myndaleikstjóra af Gyðingaætt- um. Faðir hennar verður æva- reiður og sendir manninn í fangelsi. A stríðsárunum les hún í amerísku tímariti, að móðir hennar hafi framið sjálfsmorð. Hálfbróðir hennar, Jasja, er tek- inn höndum af Þjóðverjum, og Stalin neitar tilboði að skipta á þýzkum hershöfðingja fyrir hann. Jasja er síðar tekinn af lífi í Þýzkalandi, en heima í Sovétríkjunum er kona hans send í fangelsi í tvö ár sam- kvæmt þeim lögum, að fjöl- skylda manns, sem lætur óvinina ná sér lifandi, skuli gjalda þess. Bróðir hennar Vasilij verður drykkjusjúklingur. Hún giftir sig og skilur við manninn þrem- ur árum síðar. Hún giftist aft- ur, og fer á sömu leið. Þriðja hjónabandið nefnir hún ekki. Faðir hennar er tithrópaður sem blóðþyrstur einræðisherra nokkr- um árum eftir andlátið, ogjólk, sem hún þekkir, fer að tínast heim úr fangabúðum. Hvernig á hún að koma heim og saman þcim ástúðlega föður, sem hún minnist úr bernsku, fálátum og hranalegum á fullorðinsárum hennar og grimmum harðstjóra að sögn Jieirra, sem gerzt máttu vita. Hún verður oftsinnis klökk, þegar hún ræðir um föð- ur sinn, og vill sífellt kenna Berja um, hann hafi verið Stal- ins illi andi. Hún reynir ekki að veita neina yfirsýn um stjórn- málastarf föðnr síns, leiðir það með öllu hjá sér. I bréfunum fer hún ekki eftir tímaröð atburða, tekur sér lang- an tíma að komast að þungbær- um móðurmissi, en hún byrjar á frásögn af láti föður síns tíu árum áður en hún tekur sér penna í hönd og byrjar þessa bók, sem hún segist skrifa í jDeim tilgangi að velta af sér óþolandi byrði. — Það er 2. marz 1953 að hún er kölluð út úr frönskutíma í háskólanum og sagt, að Malenkov biðji hana að koma strax til Blisnej, en það var hús föður hennar í Kuntsevo fyrir utan Moskvu. Þá Krustjov og Bulganin ber að dyrum um leið og hún kemur. Þeir leiða hana inn og segja að Berja og Malenkov muni segja henni allt. Faðir hennar hefur fengið heila- blóðfall. Þjónustufólkið hafði komið að honum á gólfinu kl. 3 um nóttina. Þarna er fjöldi lækna og hjúkrunarkvenna, heimafólk og miðstjórnarmenn, ráðvana hópur og hljóður. Einn sker sig þó úr, og það er Berja. Hún segir: „Hann var í æstu skapi, og andlit hans, andstyggi-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.