Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1967, Blaðsíða 42

Eimreiðin - 01.09.1967, Blaðsíða 42
DAGUR í AZOREYJUM Ferðasaga eftir Einar Guðmundsson. Við lögðum af stað 102 farþeg- ar á Gullfossi hinn 17. janúar 1967, og var ferðinni heitið til Azoreyja. Þegar beygt hafði verið fyrir Reykjanes, var stefnan tekin á Sankti Mikjálsey (Sáo Miguel). Til Ponta Delgada, höfuðstaðar Azoreyja á St. Mikjálsey, komum við eftir rúmlega 5 sólarhringa siglingu sunnudaginn 22. janúar kl. 8 að kvöldi. Okkur seinkaði um nokkrar stundir vegna brims. Fögur er sjóhröktum fold —, segir máltækið. Myrkur var rekið yfir að vísu, og við misstum af lang- þráðri landsýn að kalla, grilltum einungis ljós í þorpum á St. Mik- jálsey, er við sigldum lengi fram með í drungalegu rökkrinu. En eftir margra daga skak í 7—11 stiga vindi, þegar við vorum minnt á, að Sálin er svo sem að láni samtengd við líkamann, — var ekki um slíka smámuni að sakast. Enda var gert ráð fyrir að dveljast 36 stundir í eynni, svo að allgóður tími var til stefnu. Logn var og dumbungur þetta kvöld. Lofthiti var 14° C., en sjáv- arhiti 17° C. Veðursæld er frábær í Azoreyjum. Vetrarríki þekkist þar ekki. Hiti verður lægstur 12° C. í janúar, en fer vart yfir 30° C. á surarum vegna svalra vinda At- lantshafsins. Tjón af völdum felli- bylja er stundum nokkurt; felli- byljirnir Carrie, 1957; Flóra og Hanna, 1959, ogDebbie, 1961, koma Jjar við sögu. Og íbúar margra Azoreyja eiga við jarðskjálfta, eld- gos og öskufall að stríða. Vila Franca do Campo, rúma 20 km frá Ponta Delgada, var fyrr meir höf- uðstaður Azoreyja. En í miklum jarðskjálfta í október árið 1522 hrundi háls einn norðan borgar- innar og gróf 5000 manns lifandi. Aðeins 70 menn komust lífs af og sumir Jjeirra ekki með réttu ráði. Eftir Jjað var skipt um höfuðstað. Azoreyjar eða A^ores, eins og eyjaskeggjar nefna þær sjálfir á tungu sinni, portúgölsku, eru níu alls og draga nafn af a^ores, fálk- um — eða milhafres, sem af mis- gáningi voru taldir vera fálkar, en eru músvákar. Það úði og grúði af jjeim fugli fyrr meir í eyjunum. Sá fugl hefur ekki enn flutzt til íslands, þótt góður flugfugl sé. St. Mikjálsey er stærst Azoreyja, 747 ferkílómetrar. Hún er tæpir 66 km að lengd, en rnest 15 km að breidd, íbúar um 180 þúsundir, af
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.