Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1967, Síða 50

Eimreiðin - 01.09.1967, Síða 50
230 EIMREIÐIN brennisteinsfýlu lagði af — og minntu á Gunnu á Reykjanesi. Margt var þar litfagurra steina. Ölkelduvatn spratt úr bergi þarna í grennd, og þar stóð drengur með glös og bauð fólki að drekka. Þau börn, sem áttu heima í þorpinu, gengu berfætt eins og víðar í eynni. „Eruð þið Svíarnir?“ spurði gamall, berfættur götusópari okkur. Frá þessum nornakötlum, sem eyjaskeggjar sjálfir telja hina mestu í Evrópu, var næsti áfangi okkar í botn Furnasdals. Víða á ökrum var fólk við vinnu. Sumir voru að raka yfir nýplægða akra með handverkfærum, aðrir að sá, enn aðrir að gróðursetja nytja- jurtir. Hver þumlungur lands að kalla var nýttur, bröttustu brekk- urnar til skógræktar. Gróskan var svo mikil, að smjör virtist drjúpa af hverju strái. Nokkrir unglingar báru lieim vatnakarfa, sem þeir höfðu veitt. Konur í borgum og þorpum voru með slegin sjöl utan yfir hversdags- búningi. Dalbrúnir Furnasdals voru sum- ar jafnfljótfarnar og mjóstu heiða- brúnir Vestfjarða. Víða fossuðu lækir niður í dalinn, og vatnsmyln- ur stóðu við þá suma. Þar er mal- að korn. Fyrir einni öld sótti fjöldi Breta heilsulindir dals þessa til að fá meðal annars bót við gikt- og hjartasjúkdómum með því að þamba ölkelduvatn og baða sig í því eða hveravatni. Bretar tóku sér þá oft far með skipum, er voru að sækja appelsínufarma til St. Mikjálseyjar. Við ókum til Terra Nostra, gisti- húss í jaðri þorps eins. Sjö metra há camelíutré mynduðu trjágöng með veginum inn í tandurhreint þorpið, hnarreistir hlynir uxu á stangli. Pelargoníur, er hafðar voru sums staðar í limgirðingar, voru orðnar að þykkum runnum. Skammt frá Terra Nostra var vatnsmylna, sem áttræður maður gætti. Einnig var þar í grennd lítill hljómskáli frá gistihúsinu. Við snæddum hádegisverð þarna, en með matnum var borið létt, bleikt vín, þrúguvín úr eynni, og vatn, sem var einkar bragðgott. Glæný ilmandi granaldin voru meðal réttanna. Eitt af því, sem Azoreyjabúar eru snillingar í að framreiða, er hnýsutunga. Skömmu eftir að máltíð var lok- ið fór túlkurinn með okkur á göngu um garð handan gistihúss- ins Terra Nostra og í eigu þess. Inn í garðinn var gengið um há trjágöng af alparósum. Túlkurinn sagði, að ekki þyrfti natni við gróðursetningu þarna, allt dafnaði þar, enda væri skjól í dalnum, jarð- ylur, raki nægur úr jörðu og lofti, jarðvegur frjór. Brezkir og portú- galskir garðyrkjumenn skipulögðu þenna stóra garð seint á 18. öld. Brátt blöstu við nokkrar tjarnir. í einni þeirra sá ég eichhornin crns- sipes af ættinni pontederiaceae. Jurt þessi er stundum nefnd vatna- hyacinta. Hún myndar sums stað- ar líkt og eyjar í ám, stöðuvötnum og skipaskurðum í hitabelti Suður- Ameríku, við Mexícóflóa, í Vest- ur-Indíum og víðar. Þegar Kristó-

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.