Eimreiðin - 01.09.1967, Qupperneq 61
HUI.DUSJÓÐIR HJARTANS
241
/'Andlegt hættuástand mannsinsV
Um allar þessar bækur mætti
margt segja, þó að ekki verði héi
gert. Aðeins skal þess getið uin
bókina „Hidden Teachings beyond
Yoga“, að þar tekur höfundurinn
efnishyggjuna til meðferðar, ræðst
á virki hennar og skilur við þau
í rústum. Minnist ég ekki að hata
séð annars staðar jafn rækilega
gengið að verki á þessu sviði.
Um Brunton sjálfan er þetta
vitað: Hann er fæddur í London
1898. Gekk hann á svonefndan
Central Foundation skóla og St.
Georges College og McKinley
Roosevelt College. Naut einnig
einkakennslu og er doktor í heim-
speki. Hann ferðaðist mikið í Ev-
rópu og Bandaríkjum Norður-
Ameríku. Þegar í æsku fékk hann
áhuga á bókmenntum, listum, dul-
hyggju og heimspeki. Ritaði hann
greinar í brezk og amerísk blöð
um hin ólíkustu efni og var
um tíma Evrópufréttaritari fyrir
Madras Sunday Times á Indlandi.
Um skeið gaf hann út tímaritið
„World Trade“ (Heimsverzlun) og
var samstarfsmaður að útgáfu rits-
ins „Key to London“ (Lykill að
London). Auk þess annaðist hann
um bókmenntaþætti í tímaritinu
„Occult Review“ (Dulræn ritsjá)
og „Success Magazine“ (Velfarnað-
artímaritið).
Eins og áður er sagt, var Brun-
ton snemma dulsinni, og að því
kom, að hann legði alla blaða-
mennsku og útgáfustarfsemi á hill-
una til þess að geta ferðast um
Austurlönd og kynnt sér kenning-
Poul Brunton.
ar og lífshætti yogaiðkenda, heil-
agra manna og heimspekinga.
Lifði hann um skeið á afskekkt-
um stöðum í klaustrum og bústöð-
um einsetumanna. Fyrirlestra flutti
hann einnig í Ameríku, Kína,
Ceylon og Indlandi, og á síðast-
nefnda staðnum hefur liann talað
í útvarp.
Elzti munkurinn í Síam (Thai-
landi) sýndi honum þann sóma, að
færa honum að gjöf heiðursskír-
teini og Buddhastyttu, sem var
persónuleg eign hins fyrrnefnda.
Um skeið lagði Brunton stund á
rannsóknir austrænna handrita í
svonefndu Mysoresafni með aðstoð
innlendra fræðimanna, og sam-
kvæmt boði Hans Hátignar kon-
ungsins í Mysore fékk hann fræðslu
16