Eimreiðin - 01.09.1967, Qupperneq 76
256
EIMREIÐIN
að verða á þessari útgáfu „áður langt
um líður“ og er gott til þess að liugsa.
I þessu nýja bindi eru ævisögur
eftirtalinna manna: Jóseps Skaftason-
ar læknis, Péturs Guðjónssonar organ-
leikara, Þóru Melsteð, stofnanda
Kvennaskólans í Reykjavík, Valdimars
Asmundssonar ritstjóra, Einars Jóns-
sonar prófasts á Hofi, Sigurðar Stefáns-
sonar prests og alþingism. frá Vigur,
Bríetar Bjarnhéðinsdóttur, forustu-
konu á sviði kvenréttinda, Ólafs Da-
víðssonar náttúrufræðings, rithöfund-
ar og þjóðsagnasafnara, Jóns Ólafsson-
ar bankastjóra og alþingismanns, Hall-
dórs Vilhjálmssonar skólastjóra, Guð-
mundar G. Bárðarsonar náttúrufræð-
ings, Magnúsar Sigurðssonar banka-
stjóra, dr. Gunnlaugs Claessens yfir-
læknis og Steinþórs Sigurðssonar nátt-
úrufræðings.
Alls þessa mæta fólks er að sjállf-
sögðu minnzt af virðingu og makleik-
um, ævisögurnar yfirleitt vel ritaðar
og sumar afburða vel, og vil ég geta
þessara sérstaklega: Jóseps Skaftason-
ar eftir Pál V. G. Kolka, Ólafs Davíðs-
sonar eftir Steindór Steindórsson og
Steinþórs Sigurðssonar eftir Jón Ey-
þórsson.
Þess ber að geta sérstaklega, hve vel
hefur í alla staði verið til útgáfunn-
ar vandað af hálfu útgáfufyrirtækisins,
en forstjóri þess er sem kunnugt er
Birgir Kjaran alþm. Bókin er VIII +
280 bls., að meðtöldum formála og
nafnaskrá, prentuð í Odda, snyrtilega'
og af vandvirkni, en stöku myndir
liafa ekki prentazt svo sel sem skyldi,
að því er virðist vegna þess, að mynda-
mót liafa ekki verið gerð eftir galla-
lausum myndum. Svo er til dæmis um
myndina af Halldóri Vilhjálmssyni,
sent liefur auk þess lent inni í ævi-
sögu annars manns, en vel má vera,
að þau mistök hafi ekki náð. til alls
upplagsins.
Eg hef lýst það skoðun mína í út-
varpserindi, að forustumanna þjóðar-
innar, en um marga þeirra hefur styrr
staðið, beri að minnast eins og þeir
voru mestir og beztir. Það hefur verið
gert í safninu Merkir íslandingar.
A. Th.
Kristinn Reyr: SJÖ SÖNGLÖG. Carl
Billich bió til prentunar. Reykja-
víkl967.
I haust kom út sönglagahefti eftir
Kristin Rey. Kynnast menn þar nýrri
hlið á listsköpun Kristins, en fram
að þessu hefur liann verið kunnastur
af ljóðum sínum, enda hefur hann
gefið út nokkrar ljóðabækur. Þó er
hógværð hans svo mikil, að ekkert af
sönglögunum er við kvæði eftir hann
sjálfan, en lög hans eru við ljóð eftir-
talinna skálda: Húsin í bænum, eftir
Tómas Guðmundsson, Aamma kvað,
eftir Örn Arnarson, Vorið góða, eftir
Jóhannes úr Kötlum, Að skýja baki,
eftir Davíð Stefánsson, Brátt kemur
betri tíð, eftir Halldór Laxness, I
veizlulok, eftir Magnús Asgeirsson og
Elín Helena, eftir Stein Steinarr.