Eimreiðin - 01.01.1968, Blaðsíða 12
2
EIMREIMN
Dr. Kristján Eldjárn er fæddur að Tjörn í Svarfaðardal 6. des-
ember 1916, sonur Þórarins Kristjáns Eldjárns bónda J:>ar og konu
hans, Sigrúnar Sigurhjartardóttur. Kristján lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum á Akureyri 1936. Hann stundaði síðan nám í
fornfræði við Hafnarháskóla 1936—1939. Mag. art í íslenzkum
fræðum frá Háskóla íslands vorið 1944, dr. phil. við sama skóla
1957. Hann var skipaður þjóðminjavörður 1. desember 1947 og
hefur gegnt því embætti síðan. Dr. Kristján Eldjárn hefur verið
í stjórn hugvísindadeildar Vísindasjóðs frá 1958, í stjórn Hins ís-
lenzka bókmenntafélags frá 1961, formaður örnefnanefndar frá
1959 og kjörinn heiðursfélagi í Vísindafélagi íslendinga 1950. Hann
hefur verið ritstjóri Árbókar Hins íslenzka fornleifafélags frá 1949
og birt þar margar ritgerðir um fornfræði og einnig í erlendum
tímaritum. Af öðrum ritverkum dr. Kristjáns Eldjárns má nefna
bækurnar: Rústirnar í Stöng, 1947, Gengið á reka, tólf fornleifa-
Jrættir, 1948, Um Hólakirkju, 1950, Kuml og haugfé úr heiðnum
sið á íslandi, doktorsritgerð hans, 1956, Stakir steinar, 1959, og
Hundrað ár í Þjóðminjasafni, 1962. Kona dr. Kristjáns Eldjárns er
Halldóra Kristín Ingólfsdóttir framkvæmdastjóra Árnasonar frá
ísafirði.
Dr. Gunnar Thoroddsen er fæddur í Reykjavík 29. desember
1910, sonur Sigurðar Thoroddsen verkfræðings og yfirkennara við
Menntaskólann og konu hans, Maríu Kristínar Thoroddsen, fædd
Claessen. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykja-
vík 1929 og prófi í lögfræði frá Háskóla íslands 1934. Stundaði
síðan framhaldsnám, aðallega í refsirétti, í Danmörku, Þýzkalandi
og Englandi 1935—1936. Prófessor við lagadeild Háskólans 1940—
1947. Aljúngismaður frá 1934—65 og fjármálaráðherra 1959—65, að
hann var skipaður ambassador Islands í Kaupmannahöfn. Dr.
Gunnar Thoroddsen var borgarstjóri í Reykjavík frá 1947—59, og
bæjarfulltrúi var hann frá 1938—60. Hann var formaður íslands-
deildar Þingmannasambands Norðurlanda frá 1945—57 og forseti
jress 1947—57, og formaður íslandsdeildar Aljrjóðajringmannasam-
bandsins frá inngöngu fslands í Jrað árið 1951. Formaður Norræna-
félagsins á íslandi var hann frá 1954, unz hann varð ambassador
í Kaupmannahöfn. Hann er heiðursfélagi Tónlistarfélagsins og
S.f.B.S. Af ritverkum dr. Gunnars Thoroddsens, auk fjölmargra
ritgerða í blöðum og tímaritum, má nefna: Æran og vernd hennar,