Eimreiðin - 01.01.1968, Qupperneq 27
GULLSTENGURNAR HVERFA
Sögukafli
eftir
Armann Kr. Einarsson
Sögukafli sii, sem hér fer rí eftir, er úr óprentaðri bók fyrir biirn og unglinga,
framhald bókarinnar „Oli og Maggi. með gullleitarmönnum". — Sagan er byggð
á sönnum atburði, einum mesta skipskaða, sem orðið hefur liér við land bœði
fyrr og siðar. I ofviðri aðfaranótt 19. september 1667 strandaði liollenzkl
kaupfar, „Hat Wapen van Amsterdam", við suðurströnd Islands, fórust margir
og fém var bjargað. Skipið var að koma frá Indónesiu, hlaðið klukkukopar,
silkidúkum, gulli og gersemum. Smám saman grófsl skipið i sandinn. Munn-
mœli herma, að luesti siglutoppurinn hafi ekki horfið með öllu fyrr en að
hundrað árum liðnum. — Leiðangrar búnir fullkomnum teekjum hafa verið
gerðir út til pess að leita hins lýnda skips, og að lokurn ber leitin árangur.. .
Næsta dag var mikið að snúast
í bækistöðvum leiðangursmann-
anna. Valur lét bera gullkassann
inn í kofann og annað, sem fund-
izt hafði í skipinu. Það var ekki
óhætt að láta viðkvæma og brot-
hætta hluti velkjast til lengdar
í farangursgeymslu skriðbílsins.
Ekki var heldur á það hættandi
að skilja kofann eftir mannlaus-
an. Einhvern tíma hefur verið
ágirnzt minna verðmæti en þar
var nú geymt innan veggja.
Óli var settur til að gæta kof-
ans. Hann átti 1 íka að sjálfsögðu
að annast matseldina. Ekki var
hægt með sanngirni að ætlast til
að Björn á Sandbakka hlypi oft-
ar undir bagga og héldi leiðang-
ursmönnum fleiri stórveizlur.
Valur ákvað að láta Odd flug-
mann skreppa á þyrlunni til
Reykjavíkur og athuga, hvort
hann gæti ekki fengið fornleifa-
fræðing með sér austur til þess
að fylgjast með uppgreftrinum.
Valur lagði ríka áherzlu á það
við Odd, að segja engurn óvið-
komandi frá fundi skipsins, og
biðja væntanlegan samstarfs-
mann að fara með þetta sem al-
gjört trúnaðarmál. Ef fiskisagan
flygi strax um fund gullskipsins
yrði enginn friður til að ljúka
uppgreftrinum fyrir forvitnum
fréttamönnum og ljósmyndur-
um. Ef allt gengi að óskum átti
þessi skyndiferð suður ekki að
taka nema í hæsta lagi nokkra
klukkutíma.