Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1968, Side 31

Eimreiðin - 01.01.1968, Side 31
c ULLSTENG URNA 1{ HVERFA 91 ur, að flugmaðurinn flýtti sér eins og hann gat að komast af stað. Við verðum bara að gæta þess, að rasa ekki fyrir ráð fram, Óli minn, sagði Björn á Sandbakka og klappaði vingjarnlega á öxl- ina á Óla. Óli og Björn ræddu lengi um þennan dularfulla þjófnað, en komust ekki að neinni niður- stöðu. Að síðustu létu þeir lokið aftur á kassann og gengu frá hon- um, eins og hann hefði aldrei verið hreyfður. Ojá, sagði Björn gamli og dæsti þungan. Ætli hann sé ekki kominn fram, draumurinn minn. Klukkan var farin að ganga átta, þegar Valur og menn lians komu heim af sandinum. Þeir höfðu með herkjubrögðum getað troðið sér allir í skriðbílinn. Ráð' gert var, að þegar Oddur flug- maður kæmi að sunnan flygi hann beint til leiðangursmann- anna. En nú hafði hann ekki lát- ið sjá sig. Ég skil ekkert í, hvað tefur Odd, ég vona bara, að honum hafi ekki hlekkzt á í þyrlunni, sagði Valur. Oli og Björn litu hvor til ann- ars, en sögðu ekki neitt. Þakka þér innilega fyrir síðast. Það var gaman að sjá þig aftur, Björn minn, sagði Valur. Nú, hvað er þetta, hefur þú ekki fengið einhverja hressingu, mér sýnist þú svo óvenjulega daufur í dálkinn, bætti hann við bros- andi. Jú, jú, Óli hefur gefið mér fyrirtaks kaffi, svaraði Björn og þvingaði fram dauft bros. Ég þykist vita, að þú sért kom- inn til að fá fréttir af sandinum, sagði Valur glaðlega. Og ég hef góð tíðindi að flytja þér. Blessaður, láttu þau koma, svaraði Björn og það lifnaði heldur yfir honum. Það eru nú samt ekki fréttir af nýjum gullfundi, sagði Valur kankvís. Gleymdu ekki beinagrindun- um, gall Gvendur gæi við. Óli hrökk ónotalega við og það var eins og ískaldri vatns- gusu væri skvett yfir hann. Það hafa þá ekki allir komizt frá borði, sagði Björn á Sand- bakka stillilega. Þetta voru ekki beinagrindur úr mönnum, flýtti Valur sér að segja, heldur úr einhverjum dýr- um á stærð við tófur. Ja-há, það hafa verið desmer- kettirnir, sem munnmæli herma að hafi verið með skipinu, sagði Björn ósköp blátt áfram, eins og hann væri að tala um einhver al- geng húsdýr. Góði, segðu okkur eitthvað frá þessum desmerköttum, bað Maggi og iðaði í skinninu af for- vitni.

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.