Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1968, Page 34

Eimreiðin - 01.01.1968, Page 34
24 EIMREIÐIN Hefur þú samið þetta sjálfur? sagði Drífa og það var undrun og aðdáun í röddinni. Kannski sumt, svaraði gæinn og brosti. E-ég skil þetta ekki vel, það er svo undarlegt, stamaði Drífa rjóð í vöngum. . . . í austur, vestur og hring. þú verður ekki lengi að læra tungumálið mitt, sagði gæinn og hristi lubbann frá augunum. Allt í einu spratt Gvendur gæi á fætur og smeygði bandinu á gítarnum yfir öxlina. Hann renndi fingrunum yfir strengina og dillandi danslag ómaði í eyr- um. Má bjóða dömunni upp í dans, sagði gæinn og hneigði sig djúpt. Ég kann ekki að dansa, hvísl- aði Drífa, en reis þó á fætur, eins og í leiðslu. Ekki spilar þú á gítarinn og dansar samtímis, sagði Óli og horfði forviða á gæjann, eins og hann hefði aldrei séð hann fyrr. Sá er spældur, anzaði Gvendur gæi, eins og ég hafi ekki oft áður bæði spilað og dansað í einu. Gæinn hneigði sig aftur fyrir Drífu. Ég skal kenna þér að dansa, sagði hann lágri, seiðandi r<)ddu, tók laust í hönd Drífu og leiddi hana út á gólfið. Drífa roðnaði, en sýndi engan mótþróa. I>að var líkt og hún gengi í svefni. Gæinn sleppti ekki Drífu, en steig nokkur dansspor. Skyndilega opnaðist kofahurð- in og Valur og Björn á Sand- bakka komu inn. Hvað er það, sem ég sé, þrum- aði Björn og lét brúnir síga. Hæ, hökuskeggur, sérðu ekki að ég er að kenna dömunni að dansa, sagði Gvendur gæi og brosti ísmeygilega. Svei, hreytti Björn út úr sér með djúpri fyrirlitningu og virti gæjann ekki viðlits. Björn sneri sér að dótturdótt- ur sinni og sagði skipandi róm: Svona, Drífa litla, nú komum við heim. Ég er að ljúka við að hita kókóið, sagði Óli og hrærði í litla pottinum, sem stóð á elda- vélinni. Uhu, það er sama, jxið getur beðið þangað til seinna, anzaði Björn og kastaði kveðju á leið- angursmennina. Síðan strunsaði Björn á Sand- bakka út og Drífa fylgdi afa sín- um þegjandi. Skömmu síðar heyrðist drátt- arvélinni ekið í burtu með mikl- um gný. Seint um kvöldið, áður en leið- ángursmenn gengu til náða, kail- aði Valur Óla á eintal. Óli þótt- ist vita erindið. Björn á Sand- bakka og Valur höfðu rætt málið fyrr um kvöldið. Nú var úrslita- stundin komin. Óla leið allt ann-

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.