Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1968, Side 45

Eimreiðin - 01.01.1968, Side 45
bókmenntirnar um grobbian 35 eina rímuna.10 Ýmis orð í Tíma- rímu gætu bent til beinna þýzkra áhrifa, enda hefur Jón sennilega kunnað þýzku, þar sem líklegt má telja, að hann hafi verið skólagenginn. En þetta verður að láta liggja á roilli hluta, þar sem byggt er á getgátum. Eins og áður getur, persónu- gerir höfundur Tímarímu ýmsa mannlega eiginleika, svo sem öfund ranglæti, ágirnd, illmælgi, lygi, undirferli og ofstopa. Teflt er fram andstæðum, hinu illa, Ofund og Rangláti, og hinu góða, hjónunum Kærleik og Tryggð, sem hrakin eru og pínd af miskunnarlausum drottnur- tun, en sigra að lokum. í frá- sögn rímunnar kemur fram miskunnarlaust háð, ádeila á ranglát yfirvöld. Lýsingar á þeim eru mjög afkáralegar, og sveinar Rangláts eru fulltrúar mannlegra lasta: ofstopa, flá- ræði, illgirni og lygi, og svo er einnig um þjónustur konu hans, Agirndar. I rímunni kemur einnig fram það einkenni ‘der grobianischen Literatur’ að bregða upp afkára- legum lýsingum á ósiðum eða venjum persónanna. Má nefna lýsingu rímunnar á því, þegar Ofund gamla vígir dómþing son- ar síns: sína bölvuðu brjóstamjólk á bikarinn gjörði hella. 116 Með álögum það gribba gaf og geðsformála sínum: „Nú skulu drekka allir af, eftir vilja mínum.“ 117 Þetta öl um þingið gekk, þó ei stýrði lukku, flestir af því fengu smekk, en furðu misjafnt clrukku. 118 Slepptu dyggð og drengskap þá, dáð og tryggðum vina, öllum við það eitur brá sem eldinn kenndi sina. 119 Ágirnd hljóp um allan hring, eins og vildi kanna, hún var að fá sér falleg þing og fala gripi manna. 120 Veizlusiðir eru ófagrir, þótt ekki þurfi Jseir að vera ósannir: Þar skal súpa horna liver, hver sem niður rennur, ragna þar til rökkur er og rautt þeim fyrir brennur. 196 Sagt fyrir skálum skömm og skapraun, lygi mesta [spott, upp í eyrun ekki gott, en afheyrandi hið versta. 197 Verður stokkótt, auð og önd æruna sumir missa, brenna ef klappa berri hönd, en bíta þegar þeir kyssa. 198 10 Lbs 1120 4to.

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.