Eimreiðin - 01.01.1968, Blaðsíða 46
36
EIMRFJÐlh
Ekki grætur úthellt blóð
annars bræðra tveggja,
undir borðið illsku þjóð
ýmsa í gegnum leggja. 199
Að lokurn leggur höfundur rím-
unnar út af lýsingum rímunnar
á kristilegan hátt. Vakir hið
sama fyrir Jóni og Sebastian
Brant, þótt báðum yrði lítið
ágengt:
Ótal skamma í sér ber
öfundin með dökka brún,
móðir vamma allra er,
andskotanum steypti hún. 214
Henni fylgja svik og synd,
sverðið, reiði, áreiting,
hatur, ágirnd, óréttind
og allra lianda svívirðing. 215
Guð oss kenndi góðan sið,
gefi að forðast þetta,
haldi rnönnum heiður við,
hærri og lægri stétta. 216
I Tímarímu er öfundin talin
undirrót allra lasta, en eins og
áður greinir, telur Brant í
kvæði sínu heimskuna orsök
spillingarinnar. Er hér mjótt á
munum, því að sannarlega eru
heimska og öfund systur.
VIL
Þótt ‘der neue Heiliger Grob-
ian’ sé sá skipverja ‘des Narren-
schiffes’, sem mest hefur verið
sagt frá hér, hafa ýmsir aðrir
persónugervingar kvæðisins far-
ið víða, sagt sína sögu og haft
sín áhrif. Mætti að lokum nefna
leiki þá, er tíðkuðust við há-
skóla og klausturskóla í Evrópu
allt frá miðöldum. Voru þetta
ærsl ungra rnanna og djarfra,
sem reyndu að vekja á sér at-
hygli með því að hneyksla fólk.
I leikjum þessurn lofuðu þeir
oft mest það, sem sízt skyldi.
Heimskan var í hávegum höfð,
enda munu liátíðir þessar hafa
orðið fyrir áhrifum frá marg-
nefndu kvæði Brants. Nefnd-
ust þær ‘festum stultorum’, há-
tíð heimskingjanna, og munu
hafa verið fyrirmynd herranæt-
ur Skálholtssveina, en eins og
kunnugt er, má rekja upphaf
leikritunar á íslandi til henn-
ar.11 Ef til vill koma ýmis nöfn
okkur kunnuglega fyrir sjónir,
þegar ‘das Narrenschiff’ er haft
í huga. Sperðill, Narfi eður sá
narraktugi biðill og Hrólfur,
hinn grobbni gleiðgosi og hrað-
lygni svikahrappur, eiga án efa
ætt sína að rekja til ‘des Narren-
schiffes’, þótt margt hafi skolazt
til á langri leið.
Eins og áður er á minnzt, var
það oft lofað við ‘hátíðir heimsk-
ingjanna’, er sízt skyldi, og ósið-
um og löstum sungið lof. Eras-
mus frá Rotterdammi ritaði til
dæmis Morias Encomion eða
11 StgrJÞorst Upphaf 10—17, 22—25.