Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1968, Page 71

Eimreiðin - 01.01.1968, Page 71
l‘Af) KR EINHVER AÐ KOMA 61 að það sé maður að koma út úr bylnum og sé víst útilegumaður. »>Jæja, lialdið þið það, greyin mín,“ &agði hún og virtist ekki verða undrandi, rétt eins og þetta væri hversdagslegur atburður. Þetta sagði hún Setta okkar, þótt við værum svo hrædd, að við liöfðum ekki rænu á að skafa eða sópa af okkur snjóinn. Og svo eru barin þrjú liögg, þung og mikil á bæjar- hurðina. Hundarnir vöknuðu með voðalegum andfælum, en sanit fljótir að átta sig og ruku með mesta skvaldri fram að hurðinni, lengra komust þeir ekki. í þeim svifum kom faðir okkar fram göng- in og opnaði bæinn. Mikið undr- uðumst við þann kjark, sent til þess þurfti. Það var langt til dyra, en við lögðurn við hlustir sem bezt við gátum. Svo fórum við að greina mannamál og orðaskil. Þetta gat varla verið útilegumaður og við héldumst í hendur fram göngin. há kallar faðir okkar og biður okk- ur að koma með ljós, svo að hann Eyvindur sjái til að skafa af sér. Þetta var þá bara hann Eyvindur, ekki Fjalla-Eyvindur, hann var víst dauður. Nei, þetta var hann Eyvindur garnli, kunnur írá því að liann var vinnumaður fyrir fá- um árum á næsta bæ. Við þurftum ekki að vera hrædd við hann. Þeg- ar Eyvindur hafði skafið af sér snjóinn, leiddi faðir rninn hann td baðstofu og var honum veittur sa beini, sem venja var foreldra minna að veita ferðamönnum: Eánaðir þurrir sokkar, hans þvegn- h' og þurrkaðir við hlóðaeld, færð einhver hressing, þar til kvöld- verður kom, og honum búið rúm. Nú stundaði Eyvindur umferða- bóksölu og kom ofan eða austan úr Krýsuvík. Þar bjuggu þá systir og mágur Eyvindar á einni lijá- leigu heimajarðarinnar. Þá bjuggu á höfuðbólinu, J>. e. heimajörðinni, Arni fyrrum sýslumaður Skaftfell- inga Gíslason, sem átti alla Krýsu- víkurtorfuna, sem var heil kirkju- sókn, svo og Herdísarvíkina. Á allri þessari miklu eign er nú allt í auðn og tómi. Hæli því, hver sem vill. Tíminn Jjrammaði sína settu leið. Sumar og vetur skiptust á um að leysa livort annað af hólmi í mannheimi, að hefðbundinni venju, og ávallt var eitthvað að gerast. Faðir minn var dáinn, en móðir mín liélt enn áfram búskap. Fám vetrum síðar en Eyvindar-veturinn á aðfangadag jóla bar við eftirfar- andi: Veðri var líkt farið sem hinn fyrri vetur, sem nefndur er hér að framan og Eyvindur var á ferð- inni, rnikill lausasnjór og Jrykk loðmulludrífa, hrein og ósvikin „hundslappadrífa", en lítið frost, Jrar eð loft var sem sótugur ketil- botn. Mér fannst þetta ósvikið úti- legumannaveður. Þar eð faðir minn var dáinn, fékk ég að fara síðara hluta dags með vinnumanni móður minnar til fjárins suðaust- ur í hagana, til að fara kringum féð og koma því heim. Dagurinn virtist Jtá vera aðeins morgun og kvöld, enginn dagur, en átti að vera einu hænufeti lengri heldur

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.