Eimreiðin - 01.01.1968, Blaðsíða 83
I-EGAR KGWR FYRIRGEFA -
73
sagði, með augun niðri í hand-
ritinu:
— Hvað get eg gert fyrir yður,
A1 r. Bright?
— Allt milli himins og jarð-
ar. ] svipinn hafið þér meira
vald á forlögum mínum en
nokkur mannvera undir sólinni.
Bara þér vilduð nota það til að
endurnæra anda minn með skyn-
senti yðar.
Miss Clarke hætti að skrifa.
Eg hafði aldrei séð liana verða
svo herfilega, það var eins og
augnaráð hennar dreypti eitri í
orðin, þegar hún sagði:
— Hafið þér nti uppgötvað
að kvenleg fegurð er ekki allt?
— Ekkert, Miss Clarke, ekk-
ert. Þér hafið öll skilyrði til að
gera eiginmann sælan.
— Ekki eiginmann annarrar
konu, sagði hún og horfði á mig
með nístandi ströngu augnaráði.
— Jú, ef þér giftist lionum,
svaraði ég.
~ Já, það er annað mál.
Miss Clarke stóð upp. Hún
Iiélt áfram að blína á mig. Svo
sagði hún í nærri þrumandi
rómi:
— Þér sögðuð áðan, að eg
hefði í svipinn meira vald á for-
lögum yðar en nokkur mann-
vera undir sólinni. Meintuð þér
það?
Mér fór ekki að verða um sel.
En eg ásetti mér að eg skyldi
ekki láta vélritarann minn hræða
frá mér vitið. Eg stóð upp og
sagði brosandi:
— Auðvitað meinti eg það —
hvað meinið þér?
— Eg hef ekkert við það að
athuga, sagði hún og lokaði aug-
unum.
Fáeinar sekúndur liðu.
—• Ah--------sagði hún með
löngu andvarpi og lokaði aug-
unum af nýju. — Ah — guði sé
lof!
Og í sama vetfangi hafði hún
rígneglt örmunum utan um
hálsinn á mér og var farin að
hvísla ástarorðum í eyru mér.
— Guð forði mér frá yður,
Miss Clarke! — hrópaði eg í þess-
ari hnappheldu holds og Itlóðs
— eruð þér orðin bandvitlaus?
Hún sleppti óðara tökunum,
grátandi, róleg, titrandi. Það var
næstum átakanlegt að sjá glitr-
andi tárin hrökkva niður þetta
ófagra andlit. Svo gekk hún hægt
að ritvélinni og sagði með sár-
kenndri stillingu:
— Nei, hvers virði er eg fyrir
yður? Eg hefði átt að geta sagt
mér það sjálf.
— Þér hafið misskilið mína
skynibornu samúð, Miss Clarke.
— Við konur komumst ekki
langt með skvnseminni, svaraði
hún.
— Það er misskilningur, Miss
Clarke. Nú sitjið þér hér með
25 dollara á viku og hafið verið
tekin fram yfir fjölda af fríðum