Eimreiðin - 01.01.1968, Side 84
74
EIMREIÐIN
ungum stúlkum, sem hefðu lát-
ið sér nægja 15 — og á þann
hátt getað lifað fullkomlega
sjálfstæðu og siðferðislegu lífi.
Allt saman af því að þér eruð
skynsöm. Hvað gerir ]:>að svo til,
að j^ér getið ekki tekið þátt í
fríðleikssamkeppni?
— Svo það get eg ekki! svaraði
hún og orðin nötruðu á milli
tanna hennar. Svo það get eg
ekki?
Eg horfði á hana agndofa.
— Svo það get eg ekki? end-
urtók hún í Jnáðja sinn. Eg er
ekki nógu falleg handa yður!
Hún þaut eins og hún væri
ærð um gólfið, þreif allt, sem
hún hafði af handritum og
J^eytti því framan í mig, á stól-
ana, á gólfið, svo að blöðin fuku
eins og skæðadrífa um allt her-
bergið.
— Þér getið sjálfur haft yðar
skynibornu samúð. Þetta skal
verða yður dýrt spaug! hrópaði
hún og rétti upp höndina líkt
og við eiðspjall — og rauk út
um dyrnar.
Þrem mánuðum síðar hafði
j^essi kvenengill ekki aðeins
höfðað mál á móti mér fyrir að
hafa beitt hana Ijúflingsbrögð-
um, ekki aðeins fengið einn
hinna ötulasta lögmann í New
York til að flytja málið, heldur
— unnið málið! Vegsamað sé
land vort og lög! Eg varð fvrir
stóreflis sekt, að vísu. En á hinn
bóginn gerbreyttist Lillie við
mig. Hún hafði unun af að
„fyrirgefa“ mér, varð ég var við.
Hún sinnti heimilinu tvöfalt
betur, þrátt fvrir jaað, að nú var
naumast sá dagur, að hún sæti
ekki jDolinmóð fáeina tíma úti
hjá heyrnarlausri töntu sinni í
Brooklyn. Hið eina, sem mér er
ofurlítið til ama, ef ég þyrfti
skyndilega að ná í Iállie, er að
Dorothy tanta hefir engan síma.