Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1968, Page 84

Eimreiðin - 01.01.1968, Page 84
74 EIMREIÐIN ungum stúlkum, sem hefðu lát- ið sér nægja 15 — og á þann hátt getað lifað fullkomlega sjálfstæðu og siðferðislegu lífi. Allt saman af því að þér eruð skynsöm. Hvað gerir ]:>að svo til, að j^ér getið ekki tekið þátt í fríðleikssamkeppni? — Svo það get eg ekki! svaraði hún og orðin nötruðu á milli tanna hennar. Svo það get eg ekki? Eg horfði á hana agndofa. — Svo það get eg ekki? end- urtók hún í Jnáðja sinn. Eg er ekki nógu falleg handa yður! Hún þaut eins og hún væri ærð um gólfið, þreif allt, sem hún hafði af handritum og J^eytti því framan í mig, á stól- ana, á gólfið, svo að blöðin fuku eins og skæðadrífa um allt her- bergið. — Þér getið sjálfur haft yðar skynibornu samúð. Þetta skal verða yður dýrt spaug! hrópaði hún og rétti upp höndina líkt og við eiðspjall — og rauk út um dyrnar. Þrem mánuðum síðar hafði j^essi kvenengill ekki aðeins höfðað mál á móti mér fyrir að hafa beitt hana Ijúflingsbrögð- um, ekki aðeins fengið einn hinna ötulasta lögmann í New York til að flytja málið, heldur — unnið málið! Vegsamað sé land vort og lög! Eg varð fvrir stóreflis sekt, að vísu. En á hinn bóginn gerbreyttist Lillie við mig. Hún hafði unun af að „fyrirgefa“ mér, varð ég var við. Hún sinnti heimilinu tvöfalt betur, þrátt fvrir jaað, að nú var naumast sá dagur, að hún sæti ekki jDolinmóð fáeina tíma úti hjá heyrnarlausri töntu sinni í Brooklyn. Hið eina, sem mér er ofurlítið til ama, ef ég þyrfti skyndilega að ná í Iállie, er að Dorothy tanta hefir engan síma.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.