Ægir - 01.02.1945, Síða 38
60
Æ G I R
BrJrggjjm með fyllingu er áætluð kr. 260
þús. krónur.
11. Vitabyggingar.
Á Garðskaga var reistur nýr viti á árinu
og kemur hann í stað gamla vitans. Var
gamli vitinn orðinn mjög lélegur, þ. e. a. s.
vitaturninn, svo að eigi þótti annað óhæit
en reisa nýjan turn. Er viti þessi 25 m
hár.
Lokið var við byggingu nýja vitaturns-
ins á Akranesi í stað gamla vitans. Er hæð
hans 21 m, en ljóstækin eru enn ókomin.
Enn fremur var lokið byggingu vita-
turnsins á Digranesi, og er hann 15 m hár.
Vantar sömuleiðis í hann Ijóstækin.
Vitaturninn á Bjarnareg var endur-
byggður og notuð i hann sömu Ijóstækin
og voru í gamla vitanum.
Turn fyrir nýjan vita var reistur í Æðeg
við ísafjarðardjúp. Er hæð hans 11,5 m.
Enn hefur eigi tekizt að fá Ijóstæki í þá
vita, sem vantar þau, en tryggð munu hafa
verið kaup á þeim í Svíþjóð, og nást þau
þá heim, þegar er styrjöldinni lýkur. Eru
það allmargir vitar, sem þannig er ástatt
um.
12. Landhelgisgæzla
og björgunarstarfsemi.
Ægir var á árinu 1944 hvergi staðbund-
inn við gæzlu í lengri tima, enda var
skipið oftast við ýmiss konar flutninga,
aðallega á olíu fyrir fiskiskipaflotann. Enn
fremur var skipið töluvert við björgunar-
starfsemi. Það veitti 7 innlendum fiskibát-
um (vélbátum) beina aðstoð. Átti þátt í
björgun erlends botnvörpungs og aðstoð-
aði annan, veitti auk þess tveim stærri
skipum dráttarhjálp.
Óðinn var nokkuð við gæzlu í Faxaflóa
í jan. og febrúar, en fór til austurlandsins
seint í febr. og var þar við gæzlu, aðallega
á Hornafirði, þar til viku af apríl. Fór þá
til Vestmannaeyja og var þar við gæzlu
um hálfsmánaðartíma. Fyrstu 3 vikurnar
af maí var skipið við flutninga, þar af
hálfan tímann í ferðum milli Akraness og
Reykjavíkur, vegna vöntunar á öðru skipi.
Um mánaðamótin maí—júní var skipið
um vikutima við gæzlu í Faxaflóa og
tók þá hollenzka botnv. „Utrecht“ að veið-
um í landhelgi. Var botnv. dæmdur í kr.
29 500.00 sekt, auk þess sem afli og veiðar-
færi voru gerð upptæk (metið á kr.
11 500.00). Um miðjan júní aðstoðaði Óð-
inn við að ná á flot erlendum botnvörp-
ungi, er strandað hafði á suðurströndinni.
Laust fyrir júnílok fór Óðinn norður fyrir
land og var þar við gæzlu og sumpart við
sjómælingar fram undir miðjan sept. Koin
þá suður til Reykjavíkur og var eftir þetta,
fram til áramóta, nokkuð við gæzlu í Faxa-
flóa og flutninga vestan lands. Á árinu
veitti Óðinn 17 fiskibátum (vélbátum)
beina aðstoð.
Sæbjörg var aðallega við gæzlu i Faxa-
flóa fyrri hluta ársins, fram til 3. júní. Við
flutninga frá 23. júni til 8. júlí. Við gæzlu
og sjómælingar norðan lands frá miðjum
júlí til 23. okt. Eftir það, í nóv. og des.,
nokkuð við gæzlu í Faxaflóa. Á árinu veitti
Sæbjörg 37 fiskibátum (vélbátum) beina
aðstoð. Hún 'tók einn innlendan botn-
vörpuveiðabát með ólöglegan umbúnað
veiðarfæra í landhelgi, og var hann dæmd-
ur í 6000.00 kr. sekt.
Vestfjarða-gæzliibálur m/b Richard var
Icigður til gæzlu á Vestfjörðum frá árs-
byrjun lil aprílloka, og annaðist það starf
ásamt því að fara nokkrar flutningaferðir
fyrir Vestfirðinga. Frá 21. okt. til ársloka
var m/b Huginn við Vestfjarðagæzluna. Á
árinu veittu Richard og Huginn 6 fiskibát-
um (vélbátum) beina aðstoð.
M/b Fregja var leigð til landhelgisgæzlu
í Faxaflóa frá 19. júni til 18. okt. og ann-
aðist þetta starf ásamt lítilsháttar frávik-
um til flutninga.
Varðskipin héldu enn áfram að sökkva
tundurduflum, er fundust á reki á sigl-
ingaleiðum umhverfis landið, en slíkum
dufluni hefur þó farið mjög fækkandi
siðan 1942.