Ægir - 01.02.1945, Síða 55
Æ G I R
77
fisk, sem verið hefur 3 mánuði i geymslu,
þó ekki fyrr en 1. okt. 1945.
Ráðgert er, að nokkuð af þessum flök-
um fari til Frakklands og Hollands.
Umboðsmönnum frystihúsa og skipa-
eigenda verða send afrit af samningi þess-
um.
Enn fremur hefur verið samið um sölu
á allri þessa árs framleiðslu af sildarlýsi
og því síldarmjöli og fiskmjöli,1) sem flutt
kann að verða út, við sama verði og skil-
málum og í fyrra, að því viðbættu, að allt
fiskmjölið er selt við sama verði og síldar-
mjölið.“
Samningur þessi er talinn mjög viðun-
anlegur, því að ýmsir voru þeirrar skoð-
unar, að eigi mundi takast að selja afurð-
irnar við svipuðu verði og síðastliðið ár.
Ætla má, að með þessum samningi séu
seldar sjávarafurðir fyrir 110—120 millj.
króna.
í byrjun árs fór samninganefnd héðan
til Svíþjóðar. í henni voru Stefán Jóhann
Stefánsson, alþingismaður, Arent Claessen,
stórkaupmaður og Óli Vilhjálmsson, sem
er fulltrúi Sambands ísl. samvinnufélaga
i Kaupmannahöfn. Verkefni nefndarinnar
var tvenns konar, að útvega útflutnings-
lcyfi frá Svíþjóð fyrir vörum, sem við þurf-
um að kaupa þaðan og gera samninga um
kaup á slíkum vörum og selja Svíum af-
urðir, sem við framleiðum.
Útflutningsleyfi fengust fyrir mörgum
vörutegundum, svo og tré- og stálskipum,
og verður vikið að því nánar síðar.
'Samið var. um innflutningsleyfi til Sví-
þjóðar á 125 þúsund tunnum af síld.
Leggja Svíar tunnurnar til sjálfir og flytja
þær hingað, jafnframt sækja þeir síldina
hingað á eig'in skipum. Þetta er að sjálf-
sögðu því skilyrði bundið, að hægt verði
að hefja siglingar milli Jandanna eigi síðar
en um mitt sumar. Telur samninganefnd-
in, að verðið, sem fyrir síldina fæst, sé
mjög gott.
Svíar bjóða sig og reiðubúna til að
Togari seldur.
Síðastliðið sumar keypti Ólafur S. Ein-
arsson útgerðarmaður í Keflavík togarann
Hafstein frá Hafnarfii'ði, en eigandi hans
var þá H/f. Marz í Hafnarfirði (aðalhlut-
hafar Loftur Bjarnason Hafnarfirði,
Tryggvi og Ólafur Ófeigssynir Reykjavík).
Nú nýverið hefur Ólafur selt Hafstein ný-
slofnuðu útgerðarfélagi, er heitir Vestri
h/f. Hluthafar þess eru: Eirikur Guð-
mundsson, Jón Franklín, Jón Kjartansson,
Sigurjón Sigurðsson og Þorvaldur Step-
hensen. Árni Ingólfsson, sá er um nokk-
urt skeið var með togarann Skutul, hefur
nú tekið við skipstjórn á Hafstein.
kaupa ýmsar aðrar sjávarafurðir, ef um
semdist, svo sem harðfisk, þorskhrogn,
síldarlýsi og lítilsháttar til reynslu af hrað-
frystum fiski og saltfiski.
Ekki hefur verið samið um verð á út-
flutningsvörum frá Svíþjóð né á íslenzk-
um vörum, að síldinni undanskildri. Að
svo komnu er því ekki unnt að segja hvað
það kanfi að verða, en Svíar bentu á, að
við fengjum vörur frá þeim, er ekki hefði
hækkað meira en 40—70% síðan 1939, en
hins vegar hefðu þær vörur, sem íslend-
ingar vildu selja, hækkað um mörg hundr-
uð prósent.
Sendimáður frá stjórn Finna kom á
fund ísl. sendinefndarinnar og tjáðu
henni, að Finnar vildu m. a. kaupa af
okkur síld og freðfisk, en láta i staðinn
síldartunnur og símastaura. Um þá hluti
var engin ákvörðupn tekin, því að nefndin
hafði ekki umboð til að ræða við Finna
um viðskiptamál.
1) Hér er einungis átt við vélþurrkað fiskmjöl.