Ægir - 01.11.1953, Page 4
258
Æ G I R
Tilkynning
frá stjórn Hlutatryggingasjóðs
til útgerðarmanna.
I lögum hlutatryggingasjóðs og reglugerðum er svo ákveðið, að útgerðar-
menn skuli tilkynna sjóðsstjórninni í byrjun hverrar vertíðar, hvaða dag skip
þeirra hefja veiðar, hvaða veiðarfæri þau nota til veiðanna og frá hvaða veiði-
stöð þau eru gerð út. Þá skal tilkynna hvaða dag skip hættir veiðum.
Sjóðsstjórnin hefur í samræmi við ofangreind laga- og reglugerðarfyrirmæli
ákveðið að ganga ríkt eftir því, að útgerðarmenn uppfylli þessa tilkynningar-
skyldu frá og með næstu áramótum og verða umsóknir um bætur Úr
i
sjóðnum því aðeins teknar til greina, að tilkynningarskyldu sé
fullnægt lögum samkvæmt.
Verði breyting á tilkynntri útgerðaráætlun, skal tilkynna sjóðsstjórninni það
þegar í stað.
Eyðublöð undir tilkynningar fást hjá erindrekum Fiskifélags Islands, trún-
aðarmönnum þess úti á landi og í skrifstofu félagsins í Reykjavík.
j
Reykjavík, 21. desember 1953.
Stjórn Hlutatryggingasjóðs.