Ægir - 01.11.1953, Blaðsíða 7
Æ G I R
261
Efnarannsóknar-
stofa, aðalsalur.
myndinni sjást
vinnuborð, slitþols-
mœlir á súlu, skil-
uinda o. fl.
fyrir bygginguna við Skúlagötu á milli Fiski-
félagshússins og Nýborgar. Vegna mið-
svæðisafstöðu lóðarinnar og nálægðar við
höfnina var hún ein sú æskilegasta, sem völ
gat verið á. Byrjað var á grunngreftri að
húsinu um mánaðamótin apríl og maí 1949.
Fyrir um ári síðan var lokið við byggingu
hjallara stofnunarinnar og vestustu bak-
ahnu hennar, og flutti rannsóknarstofa
Fiskifélagsins í þau húsakynni siðastl. vet-
nr. Einnig flutti dr. Sigurður Pétursson,
gerlafræðingur Atvinnudeildar háskólans,
samtímis í þetta húsnæði.
Vonir standa til, að byggingarleyfi fáist á
næsta vori fyrir aðalbyggingu stofnunarinn-
ar, en það er fjögurra hæða hús, 40 m langt
nieð Skúlagötu. Er þegar til i sjóði nægilegt
fé til þess að koma húsinu undir þak.
.,En hvað getur þú sagt mér um starfsemi
stofnunarinnar og endanlegt skipulag, þeg-
ar hið fyrirhugaða liús er risið upp?“
„Reynt hefur verið að miða stærð og fyr-
irkomulag stofnunarinnar við framtíðar-
l^arfir sjávarútvegs og fiskiðnaðar, að eins
niiklu leyti og hægt er að sjá þær fyrir. Um
helmingur byggingarinnar er ætlaður fyrir
biologiskar rannsóknir og mun Fiskideild
Atvinnudeildar háskólans flytja i það hús-
næði jafnskjótt og það er tilbúið. Sá hluti
byggingarinnar, sem þegar er byggður, heyr-
ir til tæknihluta stofnunarinnar, og hefur
Rannsóknarstofa Fiskifélagsins og dr. Sig-
urður Pétursson þegar flutt í það liúsnæði,
eins og áður er sagt. Þótt þannig séu tvær
stofnanir starfandi að tækni-rannsóknum í
þeim hluta stofnunarinnar, sem lokið er við,
er með þeim hin nánasta samvinna, enda
svo ráð fyrir gert, að öll tæknistarfsemi í
byggingunni verði sameinuð undir einu
nafni, þegar byggingarframkvæmdunum er
lengra komið. Ekki tel ég tímabært að ræða
það form, sem á þeirri sameiningu verður,
cnda nægur tími til stefnu.
Tæknihluta stofnunarinnar má skipta í
þrjá höfuð þætti. Er þá fyrst að geta hinna
eiginlegu rannsóknarstofu, þar sem fram-
kvæmdar verða efna- og gerlarannsóknir á
hráefnum og framleiðslu fiskiðnaðarins.
Stofur þessar verða aðallega á 2. hæð aðal-
byggingarinnar, en starfsemin, sem þar verð-