Ægir - 01.11.1953, Qupperneq 47
Æ G I R
301
Ms. Hvassafell 2300 DWT
Ms. Árnarfell 2300 DWT
Ms. ]ökulfell 1045 DWT
Ms. Dísarfell 1057 DWT
Ms. Bláfell 730 DWT
4*
Samviimumenn vilja með skipastól
sínum kappkosla að tryggja þjóð-
inni sem liagkvœmasta og ódýrasta
vöruflutninga.
Samband
ísl. Samvinnufélaga.
Skipadeild.
Utgerá á Vestfjöráum
í nóvember.
Patreksfirði. Aðeins einn bátur var á
veiðum og fór einungis 5 sjóferðir vegna ó-
gæfta. Afli var dágóður, mestur 5 smál.
Annar togarinn var á veiðum við Grænland,
en hinn á heimamiðum. — Bildudalur. Sex
t>átar stunduðu rækjuveiðar. Lagði einn
þeirra upp afla sinn á Þingeyri, tveir á
Patreksfirði og þrír á Bíldudat. Bátarnir
Veiddu allir í Arnarfirði. Leitað hefur verið
eftir rækju í Patreksfirði, en aðeins fengist
lítilháttar reytingur. Svipuðu máli gegnir
um Tálknafjörð. — Flateyri. Einn smábát-
ur stundaði veiðar, en þó slitrótt, fór aðeins
fjórar sjóferðir og aflaði mjög illa, mest um
2500 kg í sjóferð. — Suðureijri. Aðeins einn
bátur var þar að veiðum. Afli hans var mjög
rýr, röskar 23 smálestir í 9 róðrum. —
Bolungarvik. Fjórir þilfarsbátar voru að
veiðum og byrjuðu sumir þeirra ekki fyrr
en leið á mánuðinn. Veiði var yfirleitt mjög
treg. Aflahæsti báturinn fékk 37 smál. i 16
sjóferðum, mest um 5 smál. í róðri. Smærri
bátar öfluðu dável í Djúpinu framan af
mánuðinum. —• Hnifsdalur. Tveir bátar
voru að veiðum, en gæftir voru stopular og
afli mjög rýr. — ísafjörður. Tveir og þrír
þilfarsbátar voru lengstum á veiðum í mán-
uðinum. Afli var jafnan mjög rýr. Afla-
hæsti báturinn, Pólstjarnan, fékk rúmar 50
smálestir í 17 róðrum, mest um 41/2 smál.
í róðri. Tveir smáir þilfarsbátar og 3—4
smábátar hafa einnig stundað veiðar, en
mjög slitrótt. Afli þeirra var einnig mjög
tregur. Togarinn Sólborg var að veiðum við