Ægir - 01.03.1980, Blaðsíða 38
og aflabrögð
Allur afli báta er miðaður við óslægðan fisk, en
afli skuttogaranna er miðaður við slægðan fisk,
eða aflann í því ástandi sem honum var landað.
Þegar afli báta og skuttogara er lagður saman,
samanber dálkinn þar sem aflinn í hverri verstöð
er færður, er öllum afla breytt í óslægðan fisk.
Reynt verður að hafa aflatölur hvers báts sem
nákvæmastar, en það getur oft verið erfiðleikum
háð, sérstaklega ef sami báturinn landar í fleiri en
einni verstöð í mánuðinum, sem ekki er óalgengt,
einkum á Suðurnesjum yfir vetrarvertíðina.
Afli aðkomubáta og skuttogara verður talinn
með heildarafla þeirrar verstöðvar sem landað var í,
og færist því afli báts, sem t.d. landar hluta afla
síns í annarri verstöð en þar sem hann er talinn
vera gerður út frá, ekki yfir og bætist því ekki
við afla þann sem hann landaði í heimahöfn sinni,
þar sem slíkt hefði það í för með sér að sami
aflinn yrði tvítalinn í heildaraflanum.
Allar tölur eru bráðabirgðatölur í þessu aflayfirliti,
þar sem endanlegar tölur fyrir janúar 1979 lágu ekki
fyrir þegar blaðið fór í prentun.
SUÐUR- OG SUÐVESTURLAND
íjanúar 1980.
Gæftir bátanna voru erfiðar í mánuðinum. 224
(240) bátar stunduðu róðra og fóru þeir 1710(1920)
sjóferðir. Heildarbotnfiskafli bátanna varð 7911
(9617) tonn, miðað við óslægðan fisk. Aðauki þess-
um afla, seldu 3 bátar af svæðinu 123 tonn af slægð-
um fiski. 12 (19) stunduðu veiðar á hörpuskel og
öfluðu 918 (766) tonn.
Afla og veiðarfæraskipting bátanna var þannig:
Lína: 116 (139) bátar, semfóru 1007 sjóferðir og öfl-
uðu 3957 tonn.
Net: 80 (60) bátar, sem fóru 624 sjóferðir og öfluðu
3554 tonn.
Botnvarpa: 23 (27) bátar, sem fóru 69 sjóferðir og
öfluðu 387 tonn.
Handfæri: 5 (3) bátar og öfluðu 13 tonn í lOsjóferð-
um.
Aflahæstu bátarnir voru:
Friðrik Sigurðsson, Þorláks- Veiðarf. tonn sjóf.
höfn net 153 12
Vörður, Grindavík net 152 11
Hópsnes, Grindavík net 145 13
Gunnar Bjarnason, Ólafsvík lína 117 20
Reynir, Akranesi lína 106 18
Hamrasvanur, Rifi lína 101 18
Sigurbára, Vestmannaeyjum botnv. 83 4
Elliði, Sandgerði botnv. 56 6
Jón Gunnlaugs, Sandgerði . botnv. 55 8
35 (27) skuttogarar stunduðu veiðar, þar af lönd-
uðu 31 í heimahöfnum 10771 (6234) tonnum í 71
löndun. 5 togaranna seldu jafnframt afla erlend-
is og 4 þeirra eingöngu, samtals 1435 (1327) tonn miðað við slægðan fisk. Þrír aílahæstu togararnir a
svæðinu voru: lonn sjóf.
Bjarni Benediktsson, Reykjavík 602 3
Óskar Magnússon, Akranesi .. 445 3
Ásgeir, Reykjavík 443 3
Ajhnn í hverri verstöð miðað við óslœgðan fisk:
1980 1979
tonn tonn
Vestmannaeyjar 1.414 1.403
Þorlákshöfn 1.488 1.423
Grindavík 1.834 2.760
Sandgerði 2.856 1.862
Keflavík 1.643 1.289
Vogar 54 27
Hafnarfjörður 864 1.269
Reykjavík 4.291 2.126
Akranes 1.908 1.462
Rif 514 524
Ólafsvík 1.134 1.304
Grundarfjörður 627 307
Stykkishólmur 55 95
Aflinn í janúar 18.682 15.851
158 — ÆGIR