Ægir - 01.03.1980, Blaðsíða 52
Helgi Laxdal:
Alpha Diesel vélar
Eitt stærsta iðnfyrirtæki Dan-
merkur er Burmeister og Wain,
sem meðal annars smíðar skip og
framleiðir B & W dieselvélar. í
eigu B & W eru nokkur sjálfstæð
fyrirtæki, eitt af þeim er B & W
Alpha Diesel A/S, sem framleið-
ir Alpha dieselvélar og skipti-
skrúfubúnað fyrir skip og báta,
sem þekktur er hér á landi.
Fyrirtækið er í Frederikshavn
og var stofnað árið 1883. Fyrsta
dieselvélin var framleidd árið
1898 og var hún 2ja ha glóðar-
hausvél.
í upplýsingariti um Alpha vél-
ar frá árinu 1906 kemur fram að á
þeim tíma framleiddi Alpha
vélar undir 10 gerðareinkenn-
um, sem spönnuðu aflsviðið 1,5
hö í 40 hö, á snúningshraða 280-
450 sn/mín. Vélarnar voru glóð-
arhausvélar framleiddar með
strokkatölu 1 -2-3 eða 4 í hlutfalli
við hestaflatölu hverrar vélar.
Brennsluolíunotkun þessara véla
var um 375 g/höklst við álag á
bilinu 67%-80% en við 100%álag
450g/höklst. Jafnframt vartekið
fram að aldrei fari brennsluolíu-
notkunin yfir 500 g/höklst.
í dag er brennsluolíunotkun
véla, sem framleiddar eru af
Alpha á bilinu 159 g/höklst til
165 g/höklst sem er um 40% af
brennsluolíunotkun áðurnefndra
véla.
Margt fleira athyglisvert kem-
ur fram í áðurnefndu upplýsinga-
riti eins og t.d. að vélarnar séu
mjög gangöruggar jafnvel í miki-
um sjógangi.
Um starfsmannafjölda er ekki
vitað á fyrstu starfsárum Alpha í
Frederikshavn, en um áramót
1979-1980 störfuðu hjá Alpha
diesel milli 830-850 manns við
smíði á dieselvélum, skrúfubún-
aði og margháttuðum tengdum
búnaði.
Umboðsaðili hér á landi er H.
Benediktsson h/f, sem tók við
umboðinu 1952 af Sigurði Ág-
ústssyni á Stykkishólmi en áður
hafði H. Benediktsson h/f, verið
umboðsaðili fyrir Burmeister &
Wain um nokkurt skeið.
Hjá umboðinu starfar einn vél-
stjóralærður maður í sambandi
við Alpha dieselvélar, við sölu a
nýjum vélum, pöntun og af-
greiðslu á varahlutum og ráðgjöf
í sambandi við viðhald og notkun
vélanna. Umboðið gengst ekki
fyrir námskeiðum, þar sem Alpha
dieselvélar eru kynntar, farið i
gegnum gangverk vélanna með
tilliti til tímasetninga á hinm
ýmsu viðhaldsvinnu, raktar helstu
bilanir og orsakir þeirra. En að
minsta kosti eitt íslenskt fyrirtæki
sem flytur inn dieselvélar, hefir
haldið námskeið fyrir vélstjóra,
þar sem farið er inn á áðurnefnda
þætti, með góðum árangri.
Um viðgerðarþjónustu almennt
er það að segja að fyrirtækið rek-
ur ekki eigið verkstæði en leitað
J ha. Alphavél með skiptiskrúfubúnaði árgerð 1904.
172 — ÆGIR