Ægir - 01.03.1980, Blaðsíða 20
Útflutningsgjald af sjávarafurðum samkvæmt
lögum þessum skal vera 5,5% af f.o.b.- verðmæti
útflutnings.
2. gr.
4. gr. orðist svo:
Ríkissjóður annast innheimtu útflutningsgjalds
skv. 2. og 3. gr. og skiptast tekjur af því sem hér
segir:
1. Til Aflatryggingasjóðs
a) Almenn deild ............................ 15,0%
b) Verðjöfnunardeild ....................... 20,0%
c) Áhafnadeild ............................. 21,0%
2. Til Tryggingasjóðs fiskiskipa og til úreldingar-
styrkja
a) Til greiðslu á hluta af vátryggingarkostnaði
fiskiskipa skv. reglum, sem sjávarútvegsráðu-
neytið setur ................................. 20,0%
b) Til aldurslagatrygginga til úthlutunar skv.
reglum sem sjávarútvegsráðuneytið setur .. 3,0%
3. Til Fiskveiðasjóðs íslands og Fiskimálasjóðs
a) Til Fiskveiðasjóðs ....................... 18,0%
b) Til Fiskimálasjóðs .................. 0.8%
4. Til sjávarrannsókna og Framleiðslueftirlits
sjávarafurða, skv. reglum, sem sjávarútvegs-
ráðuneytið setur .............................. 1,0%
5. Til Landssambands ísl. útvegsmanna .......... 0,6%
6. Til samtaka sjómanna .................. 0,6%
Samtals 100%
LÖG
um breytingu á lögum nr. 80 16. sept. 1971, með
áorðnum breytingum, um Aflatryggingasjóð sjávar-
útvegsins.
1. gr.
2. gr. orðist svo:
Sjóðurinn skiptist í þrjár deildir: Almenna deild,
áhafnadeild og verðjöfnunardeild.
2. gr.
3. gr. orðist svo:
Hlutverk almennu deildar sjóðsins er að bæta
aflahluti skips og áhafnar, þegar almennan afla-
brest ber að höndum, eða þegar brýna nauðsyn
ber til að draga úr sókn til verndar mikilvægum
nytjastofnum.
Réttindi í hinni almennu deild sjóðsins eiga öll
fiskiskip án tillits til stærðar, enda sé greitt af
endanlegu afurðunum úr aflanum útflutningsgjald.
3. gr.
Á eftir 20. gr. laganna komi nýr kafli svohljóðandi:
III. KAFLI
Verðjöfnunardeild.
21. gr. - Við Aflatryggingasjóð skal starfa sér-
stök deild, verðjöfnunardeild. sem greiðir verð-
uppbætur á afla einstakra fisktegunda samkvæmt
ákvæðum þessa kafla í því skyni að draga úr sókn
í einstaka fiskstofna og beina henni til annarra.
sem fremur eru taldir þola veiðar.
22. gr. - Tekjur verðjöfnunardeildar skulu vera:
1. Tekjur af útflutningsgjaldi samkvæmt lögum.
2. Vextir og aðrar tekjur af eignum verðjöfnunar-
deildar.
23. gr. - Verðlagsráð sjávarútvegsins eða yfir'
nefnd þess skal fyrir upphaf hvers verðtímabils
gera tillögur um fjárhæð aflajöfnunarbóta á ein'
stakar fisktegundir að fengnu áliti Hafrannsókna-
stofnunar á ástandi nytjastofna og aflahorfum. Skal
fjárhæðin ákveðin innan þeirra marka, sem eigmr
og tekjur verðjöfnunardeildar hrökkva til. Sjávar-
útvegsráðherra staðfestir ákvarðanir Verðlagsráðs
sjávarútvegsins eða yfirnefndar þess um aflajöfn-
unarbætur. Aflajöfnunarbætur skv. lögum þessum
skulu koma til skipta og aflaverðlauna eins og
annað fiskverð.
24. gr. - Sjávarútvegsráðuneytið setur nánari
reglur um framkvæmd þessa kafla og starfsem1
verðjöfnunardeildar. Deildin hefur sjálfstæðan fjaf'
hag.
4. gr.
Greinaröð og kaflaheiti laganna breytist í satm
ræmi við ákvæði 3. gr.
5- gr-
2. tl. 1. mgr. 9 gr. orðist svo: Framlag ríkissjoðs
til almennu deildar sjóðsins nemi 40% af tekjum
hennar skv. 1. tl. 1. mgr. þessarar greinar.
6. gr.
Eignir almennu deildar bátaflotans og togara'
flotans svo og jöfnunardeildar Aflatryggingasjóðs-
sem starfað hafa samkvæmt lögum nr. 80 16. sepl'
ember 1971, skulu renna til almennu deildaf
sjóðsins.
7- gf- , .j
Lög þessi öðlast þegar gildi og taka ákvæ
140 — ÆGIR