Ægir

Árgangur

Ægir - 01.03.1980, Blaðsíða 62

Ægir - 01.03.1980, Blaðsíða 62
NÝ FISKISKIP Tjaldur SU-115 Um miðjan janúar sl. afhenti Trésmiðja Austur- lands hf, Fáskrúðsfirði, 17 rúmlesta eikarfiski- skip, smíðanúmer 37, sem hlotið hefur nafnið Tjaldur SU-115. Þetta er sjöttafiskiskipið af þessari stœrð og gerð frá stöðinni. Tjaldur er í eigu Fram- fara hf, Fáskrúðsfirði. Framkvœmdastjóri útgerð- ar er Jóhann Arnason og er hann jafnframt skip- stjóri á skipinu. Almenn lýsing: Bolur skipsins er smíðaður úr eik samkvæmt reglum Siglingamálastofnunar ríkisins. Skipið er frambyggt með gafllaga skut og skipt í fjögur rúm undir þilfari. Fremst er lúkar með reisn, þá vélarrúm, fiskilest og aftast er skuthylki. Þil- farshús úr krossviði á eikargrind er framantil á þilfari, yfir lúkar og vélarrúmi, og tengist fram- hlið þess lúkarsreisn. I lúkar eru hvílur fyrir fjóra menn og eldunar- aðstaða, olíukynt Sóló-eldavél. Fiskilest er klædd með krossviði, búin lestarstoðum úr eik og stíu- borðum og lestargólfplötum úr áli. Brennslu- olíugeymar eru þrír, einn í vélarrúmi og tveir í skuthylki. Ferskvatnsgeymir er í vélarrúmi. I þilfarshúsi er stýrishús fremst og salernisklefi aftantil. í afturkanti þilfarshúss er mastur með 0,75 t losunarbómu og aftantil á þilfari er toggálgi. Mesta lengd ................. 13.94 m Lengd milli lóðlína ....... 12.20 m Breidd (mótuð) ............... 3.64 m Dýpt (mótuð) ................. 1.70 m Lestarrými .................... 9.5 m3 Brennsluolíugeymar ........... 1.90 m-’ Ferskvatnsgeymir ............. 0.23 m-1 Rúmlestatala ................... 17 brl. Skipaskrámúmer ............... 1538 Véiabúnaður: Aðalvél skipsins er frá Cummins, gerð NH 855 M. sex strokka fjórgengisvél án forþjöppu, sem skilar 195 hö við 1800 sn/min. Vélin tengist niðurfærslu- og vendigír frá Twin Disc, gerð MG 509, með niðurfærslu 2.96:1, og föstum skrúfu- búnaði frá Newage Propulsion. Skrúfaer4ra blaða. þvermál 864 mm, og stigning 698 mm. Við fremra aflúttak aðalvélar er Twin Disc aflúttak af gerð C 111 PM 3, sem við tengist vökvaþrýstidæla fyrir vindur. Vökvaþrýstidæla er frá Abex Denison, gerð T3SDC-20-10. og skilar 105 1/mín við 1200 sn/mín og 200 kp/cm2 þrýst- ing. Rafall, reimdrifinn af aðalvél um aflúttak, er frá Alternator hf., 7.0 KW, 24 V. Stýris- vél er rafstýrð og vökvaknúin frá Tenfjord af gerð J-50. Fyrir vélarrúm er rafdrifinn blásari. Rafkerfi skipsins er 24 V jafnstraumur. Upphitun í lúkar og stýrishúsi er með miðstöðvarofnum tengdum Sóló eldavél. Fyrir neyzluvatnskerfið er 24 V raf- drifin dæla, sem dælir frá ferskvatnsgeymi, ogfyrir sjóskolun salernis er samsvarandi rafdrifin dæla. Vindubúnaður: Vindur eru vökvaknúnar (háþrýstikerfi) frá Véla- verkstæði Sig. Sveinbjörnssonar hf. og er um að ræða togvindu, línuvindu og bómuvindu. Togvinda er með tveimur togtromlum (159 mm‘’x 720 mm‘’x 400 mm), sem hvor tekur um 675 faðma af 114” vír, einum koppi og er knúin at Staffa vökvaþrýstimótor af gerð B 80. Togátak vindu að miðja tromlu (440 mm") er 1.7 og til- svarandi dráttarhraði 104 m/mín. 182 — ÆGIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.