Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.10.1983, Qupperneq 14

Ægir - 01.10.1983, Qupperneq 14
segulspólu. Ferillinn á 4. mynd, sem byggður er á niðurstöðunum, sýnir dagsmeðaltöl fyrir allt tímabil- ið. Við sjáum, að hitinn steig tiltölulega hratt frá því, að mælinum var komið fyrir og til 20. júní, en féll svo um 2° næstu daga. Pá jókst hann að nýju og komst upp í 18° í júlíbyrjun. Næstu tvo mánuði sveiflaðist hann nokkuð upp og niður um meðaltal, sem var nálægt 18°. í fyrstu viku september tók hitinn að falla, fyrst hægt, en síðan mjög hratt. Hinn 16. september breyttist hann úr 14.7° kl. 12:00 í 6.5° kl. 13:00, þ.e. um 8° á einum klukkutíma. Nú steig hitinn aftur og komst upp í 12° í byrjun október, en féll svo mjög skyndilega dagana 6. og 7. október niður í 3.5°. Þessu næst hækkaði hitinn að nýju og náði um 7° í árslok. Næstu 5 mánuði voru hitabreytingar litlar, en hitinn fór þó hægt lækkandi niður í 5.5° í byrjun maí 1981. Hinn jafni hiti, sem hélst alla vetrarmánuðina stafar án efa af því, að vatnið var þakið ís og blöndun því engin af völdum vinda. Efnaeiginleikar og framleiðni. Við tillífun svifþörunga efst í salta laginu á vorin og sumrin myndast mikið af lífrænum efnum. Jafnframt verður til súrefni, sem kunnugt er, og safnast það fyrir í laginu, svo að yfirmettun getur orðið með ólíkindum mikil, eins og sést á 5. mynd. í júní 1980 var súrefnis- mettunin komin upp í rúmlega 200% á 3-4 m dýpi, og í ágúst sama ár nálgaðist hún 400%. Þetta mun vera einhver sú mesta súrefnismettun, sem mælst hefur í stöðuvatni eða sjó. Gaarder og Spárck (1932), sem könnuðu hliðstæð umhverfi í norskum fjörðum, fundu allt að 250% mettun, og okkur er ekki kunnugt um, að aðrar mælingar hafi gefið svo há gildi. í þessu sambandi er vert að hafa í huga, að leysni lofttegunda við jafnvægisskilyrði minnkar með vaxandi hitastigi- Hins vegar tekur það sjóinn eða vatnið nokkurn tíma að ná jafnvægi við breyttar aðstæður vegna kælingar eða upphitunar. Þess vegna kemur t.d. ávallt fram lít- ils háttar yfirmettun (nálægt 105% að meðaltali) í haf- inu hér við land, þegar sjórinn hlýnar á vorin, og svip- uð undirmettun (nálægt 95%) mælist á veturna. Sú mikla upphitun sem verður í salta laginu á vorin og sumrin í Ólafsfjarðarvatni, gæti í mesta lagi valdið því, að útreiknuð yfirmettun næmi um 30%, og er því ljóst, að hin mælda yfirmettun stafar að langsam- lega mestu leyti af raunverulegri súrefnismyndun. Þetta kemur líka skýrt fram, ef litið er á súrefnisstyrk- inn (súrefnismagn í lítra vatns) á mismunandi tímum. Á veturna þegar ís er á vatninu, brotna hin lífrænu efni niður og oxast. Við það eyðist súrefni og þannig gengur smám saman á súrefnisforðann í salta laginu. í lok vetrar má heita, að súrefni sé þar að mestu upp- urið. Efst í salta laginu verður vatnið þó ekki súrefnis- snautt (5. mynd). 518-ÆGIR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.