Ægir - 01.10.1983, Side 25
Tilkynning frá
Fiskveiðasjóði íslands
Umsóknir um lán á árinu 1984 og endurnýjun eldri umsókna
1. VEGNA FRAMKVÆMDA í FISKIÐNAÐI
Engin lán verða veitt til byggingarframkvæmda nema hugsanleg viðbótarlán vegna
bygginga, sem áður hafa verið veitt lánsloforð til, eða um sé að ræða sérstakar
aðstæður að mati sjóðsstjórnar.
Eftir því sem fjármagn sjóðsins þar með talið hagræðingarfé hrekkur til verður
lánað til véla, tækja og breytinga, sem hafa í för með sér bætt gæði og aukna fram-
leiðni.
Framkvæmdir skuli ekki hafnar fyrr en lánsloforð Fiskveiðasjóðs liggur fyrir.
2. VEGNA FISKISKIPA
Eftir því sem fjármagn sjóðsins hrekkur til verður lánað til skipta á aflvél og til
tækjakaupa og endurbóta, ef talið er nauðsynlegt og hagkvæmt.
Framkvæmdir skulu ekki hafnar fyrr en lánsloforð Fiskveiðasjóðs liggur fyrir.
ENDURNÝJUN UMSÓKNA
Allar umsóknir vegna óafgreiddra lána þarf að endurnýja. Gera þarf nákvæma
grein fyrir hvernig þær framkvæmdir standa sem lánsloforð hefur verið veitt til.
UMSÓKNARFRESTUR
Umsóknarfrestur er til 30. nóvember 1983.
ALMENNT
Umsóknum um lán skal skila á þar til gerðum eyðublöðum, ásamt þeim gögnum og
upplýsingum, sem þar er getið, að öðrum kosti verður umsókn ekki tekin til greina
(eyðublöð fást á skrifstofu Fiskveiðasjóðs íslands, Austurstræti 19, Reykjavík, svo
og í ýmsum bönkum og sparisjóðum utan Reykjavíkur). Umsóknir er berast eftir
tilskilinn umsóknarfrest verða ekki teknar til greina við lánveitingar á árinu 1984,
nema um sé að ræða ófyrirséð óhöpp.
Reykjavík, 5. október 1983.
Fiskveiðasjóður íslands.