Ægir

Volume

Ægir - 01.10.1983, Page 25

Ægir - 01.10.1983, Page 25
Tilkynning frá Fiskveiðasjóði íslands Umsóknir um lán á árinu 1984 og endurnýjun eldri umsókna 1. VEGNA FRAMKVÆMDA í FISKIÐNAÐI Engin lán verða veitt til byggingarframkvæmda nema hugsanleg viðbótarlán vegna bygginga, sem áður hafa verið veitt lánsloforð til, eða um sé að ræða sérstakar aðstæður að mati sjóðsstjórnar. Eftir því sem fjármagn sjóðsins þar með talið hagræðingarfé hrekkur til verður lánað til véla, tækja og breytinga, sem hafa í för með sér bætt gæði og aukna fram- leiðni. Framkvæmdir skuli ekki hafnar fyrr en lánsloforð Fiskveiðasjóðs liggur fyrir. 2. VEGNA FISKISKIPA Eftir því sem fjármagn sjóðsins hrekkur til verður lánað til skipta á aflvél og til tækjakaupa og endurbóta, ef talið er nauðsynlegt og hagkvæmt. Framkvæmdir skulu ekki hafnar fyrr en lánsloforð Fiskveiðasjóðs liggur fyrir. ENDURNÝJUN UMSÓKNA Allar umsóknir vegna óafgreiddra lána þarf að endurnýja. Gera þarf nákvæma grein fyrir hvernig þær framkvæmdir standa sem lánsloforð hefur verið veitt til. UMSÓKNARFRESTUR Umsóknarfrestur er til 30. nóvember 1983. ALMENNT Umsóknum um lán skal skila á þar til gerðum eyðublöðum, ásamt þeim gögnum og upplýsingum, sem þar er getið, að öðrum kosti verður umsókn ekki tekin til greina (eyðublöð fást á skrifstofu Fiskveiðasjóðs íslands, Austurstræti 19, Reykjavík, svo og í ýmsum bönkum og sparisjóðum utan Reykjavíkur). Umsóknir er berast eftir tilskilinn umsóknarfrest verða ekki teknar til greina við lánveitingar á árinu 1984, nema um sé að ræða ófyrirséð óhöpp. Reykjavík, 5. október 1983. Fiskveiðasjóður íslands.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.