Ægir - 01.10.1983, Side 54
skutrennu er toggálgi, en yfir frambrún skutrennu er
bipodmastur, sem gengur niður í skorsteinshúsin.
Hvalbaksþilfar er heilt frá stafni aftur að skips-
miðju, en þar greinist það í tvennt og liggur meðfram
báðum síðum aftur að skorsteinshúsum. Aftarlega á
heilu hvalbaksþilfari, nokkru framan við skipsmiðju,
er brú (stýrishús) skipsins, sem hvílir á reisn. Á brú-
arþaki er ratsjármastur m.m., en á afturhlið brúar-
þaks eru hífingablakkir.
Vélabúnaður:
Aðalvél er frá MAK, átta skrokka fjórgengisvél
með forþjöppu og eftirkælingu. Vélin tengist niður-
færslu- og skiptiskrúfubúnaði, með innbyggðri kúpl-
ingu, frá Volda Mek. Verksted.
Tœknilegar upplýsingar (aðalvél mlskrúfubúnaði):
Gerðvélar...............8M282
Afköst ................. 1768 hövið 900 sn/mín
Gerð niðurfærslu- og skipti-
skrúfubúnaðar ..........ACG 62/450
Niðurgírun .............3.53:1
Efni í skrúfu ..........NiAl-brons
Blaðafjöldi ............4
bvermál ................ 2300 mm
Snúningshraði .......... 255 sn/mín
Skrúfuhringur ..........FD 2300/0.5
Á niðurfærslugír er eitt úttak (1500 sn/mín) l'yrir
riðstraumsrafal. Rafall er frá Stamford af gerð AMC
634C, 560 KW (700 KVA), 3 x 380, 50 Hz.
Hjálparvélar eru tvær Mercedes Benz, gerð OM
422 A, sex strokka fjórgengisvélar, sem skila 293 hö
við 1500 sn/mín. Hvor vél knýr Stamford riðstraums-
rafal af gerð MC 434 d, 168 KW (210 KVA), 3 x 380
V, 50 Hz.
Stýrisvél er rafstýrð og vökvaknúin frá Tenfjord, af
gerð I-160-2ESG430, snúningsvægi 3600 kpm.
Tvær Alfa Laval skilvindur af gerð MAB 103 B24
eru fyrir brennsluolíu- og smurolíukerfið. Ræsiloft-
þjöppur eru tvær frá Sperre af gerðinni HL2/77,
afköst 25 m3/klst við 30 kp/cm2 þrýting hvor. Fyrir
vélarúm og loftnotkun véla eru tveir rafdrifnir blás-
arar frá Alfsen og Gunderson A/S, afköst 10000 m3/
klst hvor.
Rafkerfi skipsins er 380 V riðstraumur fyrir raf-
mótora og stærri notendur, en 220 V riðstraumur til
ljósa og almennra nota í íbúðum. Fyrir 220 V kerfið
eru tveir 41.5 KVA spennar 380/220V. Hjálparvéla-
í vélarúmi. Ljósm.: Tæknideild, R.Á.
rafala er unnt að samkeyra. í skipinu er 125 A, 380 V
landtenging.
í skipinu er austurskilja frá R.W.O af gerð GSF
1.0, afköst 1.0 m3/klst. Tankmælikerfi er frá Peilo
Teknikk, aflestur í vélarúmi.
íbúðir eru hitaðar upp með miðstöðvarofnum, sem
fá varma frá kælivatni aðalvélar og rafelementum til
vara og í höfn. Til að hita neyzluvatn er 200 1 hita-
kútur búinn kælivatnshitun og rafelementi til vara.
íbúðir eru loftræstar með rafdrifnum blásurum fra
Alfsen og Gunderson A/S (Semco); fyrir innblástur
er einn 2000 m3/klst blásari með 25 KW vatns-
hitaelementi í loftrás, og fyrir snyrtiklefa og eldhus
eru tveir sogblásarar, afköst 600 og 576 m3/klst. Fyrm
vinnuþilfar eru tveir rafdrifnir blásarar frá Alfsen og
Gunderson, annar fyrir innblástur, afköst 5000 m '
klst, og hinn fyrir sog, afköst 3240 m3/klst, sem einnig
þjóna dælurými og ísvélaklefa. Vinnuþilfar er hitað
upp með heitu lofti frá dælurými, og hvalbaksrými
með rafhitablásurum. Fyrir hreinlætiskerfi er eitt
vatnsþrýstikerfi frá Jarlsó Fabrikker, stærð þrýsti-
geymis 200 1. Fyrir salerni er lofttæmikerfi frá IFG
Evak.
Fyrir lágþrýstivindubúnað skipsins er sjálfstætt
vökvaþrýstikerfi (40 kp/cm2) með rafdrifnum vökva-
þrýstidælum, dælur frá Allweiler. Dælur eru tvær a
gerð SNH 1700, knúnar af 120 KW Nebb rafmótorum
og tvær af gerð SNH 1300, knúnar af 100 KW Nebb
rafmótorum. Þá eru tvær rafdrifnar Allweiler SNH
660 lágþrýstidælur fyrir átaksjöfnunarbúnað tog'
vindna, sem einnig þjóna sem aflgjafar vindna. Sam-
byggt rafvökvaþrýstikerfi er fyrir losunarkrana. Fynr
blóðgunarker, vökvaknúnar lúgur o.fl. er sjálfstsett
vökvaþrýstikerfi með tveimur rafdrifnum dælum-
staðsett í geymslu b. b. -megin. Fyrir stýrisvél eru tvær
rafknúnar vökvadælusamstæður.
558-ÆGIR