Ægir - 01.01.1986, Blaðsíða 65
og til að taka við endurvörpunum. Sendirinn er
búinn hlaðanlegum rafhlöðum og endist hleðsla
þeirra í 15 stundir. Magnnemarnir eru hinsvegar
búnir venjulegum rafhlöðum ogendast þær í um 200
stundir.
CN-10 veiðarfæramælirinn er nú þegar kominn í
10 fiskiskip og tvo litla rækjubáta og mun á næstunni
koma í um sjö skip til viðbótar.
Eftirfarandi verðupplýsingar fengust hjá umboðs-
I þessu tölublaði birtast lýsingar af þremur fiski-
skipum úrtrefjaplasti, öll 15 rúmlestir að stærð, sem
bættust við flotann árið 1983. Þegar að vargáð kom
1 Ijós að lýsingarhöfðu ekki birstaffimm fiskiskipum,
sem afhent voru á árunum 1983-1984, öll í hópi
'ninni þilfarsfiskiskipa. Þeirri reglu hefur verið fylgt
að birta lýsingar af öllum fiskiskipum stærri en 12
bd., og því þótti eðlilegt að bæta úr þessum van-
skilum þó seint sé. Lýsingar af þeim tveimur, sem
eftir eru munu birtast í næsta tölublaði.
RóbertSH 142
/ febrúar 1983 bættist við flotann nýtt fiskiskip úr
trefjaplasti, sem hlaut nafnið Róbert SH 142. Bolur
ásamt stýrishúsi var keyptur frá Cygnus Marine Ltd. i
kalmouth í Englandi, en smíðinni lokið hér heima,
þ-e. innréttingar, niðursetning á véla- og tækjabún-
aði og frágangur. Upphaflega var gömul Perkins
sðalvél íbátnum, en árið 1984 varsett ný vél i hann.
Róbert SH var upphaflega í eigu Guðlaugs jónssonar
1 Reykjavík, en er nú í eigu Þórðar Jóhannessonar á
dlftanesi, sem jafnframt er skipstjóri.
Almenn lýsing:
Fiskiskip þetta er smíðað undir eftirliti Siglinga-
^álastofnunar Ríkisins. Fremsti hluti þilfars er með
reisn, en undir þilfarinu er skipinu skipt í fjögur rúm
J^eð vatnsþéttum skilrúmum. Fremst undir þilfari er
úkar með þremur hvílum, bekk og eldunaraðstöðu,
elíukynt Sólo eldavél; en þar fyrir aftan er vélarrúm;
Pá fiskilest með uppstillingu úr tré og plasti og aftast
er skuthylki. í vélarrúmi eru tveir brennslu-
e'íugeymar og einn ferskvatnsgeymir. Stýrishúsið er
ramantiI á þilfari, yfir aftari hluta lúkars og fremri
iuta vélarrúms. Mastur er í afturkanti stýrishúss.
aðila hérlendis sem er Skiparadíó h.f. Verðin eru cif
verð í dönskum krónum en einnig umreiknuð í
íslenskar krónur á gengi þann 13.1.1986.
Mælir með tveimur magn- nemum og hleðslutæki fyrir sendi Magnnemi dansk.kr. ísl.kr. . 237.862 1.1 18.403 . 25.376 119.315
Mesta lengd 10.12 m
Lengd milli lóðlína ... 8.80 m
Breidd
Dýpt (mótuð) 2.30 m
Lestarrými 15 m3
Brennsluolíugeymar . . . . 2.0 m3
Ferskvatnsgeymir 0.2 m3
Rúmlestatala 15 brl.
Skipaskrárnúmer 1644
Vélabúnaður:
Aðalvél er frá Caterpillar, gerð 3208 DIT, átta
strokka fjórgengisvél með forþjöppu, sem skilar 147
KW (200 hö) við 2400 sn/mín. Við vélina er niður-
færslugír frá Borg Warner, niðurgírun 3.0:1, og
skrúfubúnaður með fastri stigningu, skrúfa 3ja blaða,
þvermál 914 mm.
Um aflúttaksbúnað á aðalvél er reimdrifinn 3 KW
rafall og útkúplanleg vökvaþrýstidæla fyrir vindu-
búnað. Stýrisvél er rafstýrð og vökvaknúin frá
Wagner, gerð N-175, snúningsvægi um 160 kpm.
Rafkerfi er 24 V jafnstraumur. Upphitun í lúkar er
með Sólo eldavél.
Vindubúnaður:
í skipinu eru línu- og netavinda frá Sjóvélum h.f.,
vökvaknúin, með aðdráttarbúnaði. Færavindur eru
rafdrifnar frá Fiskeriautomatik og eru fjórar talsins.
Rafeindatæki o.fl.:
Ratsjá: JRC, gerðJMA 300, 24 sml
Seguláttaviti: Borðáttaviti
Sjálfstýring: Neco528
Loran: Micrologic ML 2000
Dýptarmælir: JRC, gerðJFV116, litamælir
Örbylgjustöð: Raytheon, Ray 53
Af öðrum búnaði má nefna neyðarsendi og sex
manna gúmmíbjörgunarbát, búinn Olsen sjósetn-
ingarbúnaði.
ÆGIR-57