Ægir - 01.01.1986, Page 72
Loðna til bræðslu Nr. 1/1986.
Yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarútvegsins hefurákveðiðeftir-
farandi lágmarksverð á loðnu v^iddri til bræðslu frá 1. janúar
til 10. febrúar 1986.
Hverttonn ............................ kr. 830.-
Verðið er miðað við samtölu fitu- og þurrefnisinnihalds er
nemur 24%. Verðið breytist um kr. 90.- til hækkunar eða
lækkunar fyrir hvert 1 %, sem samtalan breytist frá viðmiðun
og hlutfallslega fyrir hvert 0.1 %. Ennfremur greiði kaupendur
kr. 2.50 fyrir hvert tonn til reksturs Loðnunefndar.
Samtala fitu- og þurrefnismagns hvers loðnufarms skal
ákvörðuð af Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins ettir synum,
sem tekin skulu sameiginlega um borð í veiðiskipi af fulltrúa
veiðiskips og fulltrúa verksmiðju.
Verðið er miðað við loðnuna komna í löndunartæki verk-
smiðju. Ekki er heimilt að blanda vatni eða sjó í loðnuna við
löndun og óheimilt er að nota aðrar löndunardælur en þurr-
dælur.
Verðið er uppsegjanlegt með þriggja daga fyrirvara frá 20.
janúar 1986.
Verðuppbót úr verðjöfnunardeild Aflatryggingarsjóðs:
Meðvísuntilákvæðalll. kaflalaganr. 51 frá 28. apríl 1983
um Aflatryggingasjóð sjávarútvegsins, skal greiða 6% uppbót
á framangreint verð allt verðtímabilið. Uppbót þessi reiknast
á lágmarksverð þess afla, sem landaðer til vinnslu hér á landi.
Uppbót þessi greiðist úr verðjöfnunardeild Aflatrygginga-
sjóðs og annast Fiskifélag íslands greiðslurnar til útgerðarað-
ila eftir reglum, sem sjávarútvegsráðherra setur.
Reykjavtk, 31. desember 1985.
Verðlagsráð sjávarútvegsirts.
Sjómanna Almanak
1986
er komiö út
Fæst á skrifstofu félagsins
Sent gegn póstkröfu
FISKIFÉLAG ÍSLAMDS
Höfn Ingólfsstræti
Pósthólf20 - Sími 10500
64-ÆGIR