Ægir

Årgang

Ægir - 01.12.1986, Side 39

Ægir - 01.12.1986, Side 39
Ályktanir 45. Fiskiþings Endurnýjun fiskiskipastólsins Nú síöustu ár hefur endurnýjun fiskveiðiflotans verið mjög hæg. Er svo komið að í ákveðnum skipa- flokkum er meðalaldur skipa yfir 25 ár og meðal- aldur alls flotans yfir 18 ár. Því er Ijóst að endurnýj- un er mjög aðkallandi. Þó verður að vekja athygli á, að stór hluti flotans hefur verið endurbættur verulega, þannigað meðal- aldur skipa eins og hann er reiknaður nú, segir ekki alla söguna. Um nokkurt skeið hefur fiskiskipaflotinn verið tal- inn of stór. Undanfarið hafa þó bæst við ný verkefni og stofnar sem voru taldir hrundir hafa komið til aftur. Þó varar þingið við frekari stækkun flotans. Fiskiþing ályktar því að tryggja beri útgerðinni þá afkomu að eðlilega rekin útgerð gerti endurnýjað skipakost sinn. Jafnframt að endurnýjunin fari fram jafnt og síg- andi en ekki í stórum stökkum. Slík þróun væri best tryggð með því að nýsmíðin fari fram innanlands, að því tilskyldu að íslenskur skipasmíðaiðnaður verði samkeppnisfær í verðum, annars er hætt við að endurnýjun fari að mestu fram erlendis. Þá vekur þingið athygli útgerðarmanna á hag- kvæmni þess að við verulegar endurbætur skipa og nýsmíði sameinist menn um val á tækjum og bún- aði. Þannig má ná verulegri hagkvæmni bæði við framkvæmdina sjálfa og rekstur síðar. Afkomumál sjávarútvegsins 1- a) 45. Fiskiþing mótmælir öllum hugmyndum um nýja skattlagningu á olíur enda er olíuverð á íslandi ennþá miklu hærra en í samkeppnis- löndum íslensks sjávarútvegs. b) Ekki er deilt um að fiskiðnaður er aðal stór- iðjan á íslandi. Allir virðast sammála um að stóriðja skuli eiga kost á ódýrari raforku en smáir orkukaupendur. Vegna þess er það 8. krafa íslenskra útgerðar- og fiskvinnslufyrir- tækja að þau njóti bestu kjara við orkukaup, ekki síður en önnur stóriðja í landinu. 2- 45. Fiskiþing leggur til að núverandi verð- breytingarstuðull 28,43% verði breytt með lögum til verulegrar lækkunar. Viðmiðun tveggja verðbólguára er nú mjög ósanngjörn. í um 10% verðbólgu mun tekjufærsla vegna verðbreytinga að upphæð 28,43% af nettó skuldastöðu, í mörgum tilfellum verða tekju- skattsstofn hjá fyrirtækjum sem raunverulega væru með hallarekstur. Cjaldfærsla á sama hátt yrði til þess að fyrirtæki með raunveru- legan skattskyldan hagnað, munu engan skatt bera. Þetta ósamræmi verður enn meira við núverandi aðstæður en nokkurn tímann áður hefur verið. 3. 45. Fiskiþing ítrekar samþykkt síðasta Fiski- þings varðandi vaxtagjöld af fjárfestingarlán- um. Þar segir, að lán sem bundin eru verð- tryggingu með lánskjaravísitölu beri ekki yfir 2% vexti. 4. 45. Fiskiþing minnir á að sjávarútvegur stend- ur undir meginhluta gjaldeyrisöflunar í land- inu. Þess vegna er það ófrávíkjanleg krafa til Alþingis að fjárframlög tiI stofnana, sem tengj- ast sjávarútvegi, svo sem Hafrannsóknastofn- unar, Rannsóknarstofnunar fiskiðnaðarins o.fl. verði miðuð við að þær geti á hverjum tíma sinnt þeim verkefnum, sem af þeim er krafist. 5. 45. Fiskiþing lýsir yfir áhyggjum af hugsan- legri ofveiði á rækju ogótvíræðri offjárfestingu í greininni. Fiskiþing hvetur til mikillar var- kárni í þessum málum á næstu árum. 6. 45. Fiskiþing harmar þá stöðu, sem sölumál skreiðar eru komin í, og beinir þeim ein- dregnu tilmælum til framleiðenda, að þeir komi þessum málum í lag. Þingið skorar á ríkisstjórnina að standa til fulls við þau fyrir- heit sem gefin hafa verið um aðstoð við fram- leiðendur í þessum miklu erfiðleikum. Jafnframt þakkar þingið Seðlabanka íslands fyrir niðurfellingu vaxta vegna eldri fram- leiðslu. 7. 45. Fiskiþing leggurtil að lög um Verðjöfnun- arsjóð fiskiðnaðarins verði endurskoðuð nú þegar. Þingið leggur til, að sjóðurinn verði efldur, þannig að hann nái til alls útflutnings á fiski. Náist ekki samkomulag um þetta verði sjóðurinn lagður niður. Þótt betur ári nú í nokkrum greinum sjávarút- vegsins er óbreytt ástand í öðrum. Sjávarút- vegurinn hefur ekki fengið þau rekstrarskilyrði í heild sem nægja til að standa undir eðlilegri ávöxtun og endurnýjun stofnfjár, hvað þá ÆGIR - 739

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.