Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1951, Síða 3

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1951, Síða 3
TIMARIT LOGFRÆÐINGA U. hefti, desember 1951 Um lögkjör forseta Islands i. 1) Staða forseta íslands er lögboðin og lögvarin í sjálfri stjórnarskránni. Það mundi vera með öllu óheimilt að ákveða með venju- legum lögum án stjórnarskrárbreytingar, að konungdæmi skyldi endurreist. Slíkt bryti þegar í bága við sjálft heiti stjórnarskrárinnar frá 17. júní 1944: „Stjórnarskrá lýð- veldisins Islands", og upphaf 1. greinar hennar „Island er lýðveldi", auk margra einstakra greina stjórnarskrárinn- ar. 2) Óheimilt mundi og að mæla svo fyrir, að forseti skyldi jafnframt vera forseti ráðuneytisins, eða forsætisráðherra svo sem sumstaðar er. Af fyrirmælum II. kafla stjskr. er greinilegt, að þetta gæti ekki staðizt. Forseti er utan og ofan ráðuneytisins og getur ekki riieð neinu 'móti verið einn af ráðherrunum, sbr. t. d., að forsetinn lætur skv. 13. gr. stjskr. ráðherra framkvæma vald sitt og þeir bera skv. 14. gr. ábyrgð á stjórnarframkvæmdum öllum, en forseti er sjálfur ábyrgðarlaus á stjórnarathöfnum skv. 11. gr. stjsk. Án stjórnarskrárbreytingar verður eðli og fyrir- komulagi stöðu forseta Islands ekki breytt frá því, sem í II. kafla stjskr. segir, jafnvel þótt slíkt mætti vel samrím- ast því, að hér héldist lýðveldi. II. Ætla verður, að embættisheiti forsetans sé með 2. og 3. gr. stjskr. ákveðið forseti Islands. Ekki er þetta þó eins Ijóst og skyldi. I 4., 5., 6., 7., 10., 13., 15., 18., 28., 29., og

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.