Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1951, Page 10

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1951, Page 10
224 Tímarit lögfræöinga og sagt var um sjúkleikann. Er og ljóst, að breyttar sam- göngur og allar aðstæður hljóta hér að hafa sín áhrif og stundum kann beinlínis að vera hægara að ná til forseta, þótt hann sé staddur erlendis, en hér á landi, t. d. í óbyggð- um. c. Aðrar ástæður, sem leitt gætu til þess, að forseti gæti ekki gegnt störfum um sinn, eru t. d., ef 'hann óskaði sjálf- ur hvíldar, ofbeldislýður hefði hann á valdi sínu, hann væri í fangelsi, neitaði að vinna eið eða drengskaparheit að stjórnarskránni o. s. frv. Þótt svo færi hinsvegar, að forseti missti kjörgengisskil- yrði vegna þess, að hann fengi mannorðsflekk eða missti fjárræði, mundi það eitt út af fyrir sig ekki varna honum þess að gegna störfum. Ef forseti segði ekki af sér, þrátt fyrir þetta, mundi verða að koma til afskipta Alþingis skv. 3. mgr. 11. gr. stjskr., og gæti það aftur leitt til þess, að forseti yrði að láta af störfum um sinn. Á sama veg og um missi kjörgengis mundi fara, ef forseti gegndi störf- um, sem honum eru óheimil. 2) Hvergi segir almennt, hver ákveða skuli, hvort vara- menn verði að taka við störfum forseta af þeim sökum, sem undir 1) greinir, að undanteknu því, er segir í 3. mgr. 11. gr. stjskr., en þá má segja, að Alþingi ákveði þetta. Lang eðlilegast er, að forseti meti þetta með atbeina for- sætisráðherra, þannig að gefinn sé forsetaúrskurður um það, hvenær forseti láti af störfum sökum dvalar erlendis, sjúkleika eða af öðrum ástæðum. Hugsanlegt er þó, að forseti sé t. d. svo sjúkur, að hann geti engin skipti haft af þessu, sé í höndum ofbeldismanna, sé staddur þar utan lands eða innan, að alls ekki verði til hans náð, o. s. frv. og verða þá varamenn hans óhjákvæmilega að meta þetta og taka við störfum forseta, ef þeim sýnist það nauðsyn. í framkvæmd mun mjög óformlega hafa verið að þessu farið og forsætisráðuneytið þá auglýst, að varamenn hafi tekið við, svo sem að sjálfsögðu, ef forseti hefur verið er- lendis, en ekki, ef hann hefur dvalizt hérlendis, jafnvel þótt hann hafi verið all alvarlega veikur.

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.