Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1951, Side 15

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1951, Side 15
Um löykjör forscta Islands 229 mun þinglýsingargjald hafa verið greitt, án þess að greiðslu væri krafizt. Hið algera skattfrelsi forseta tekur fráleitt til atvinnu- rekstrar hans. Að vísu mundu hreinar tekjur forseta af atvinnurekstrinum ekki verða skattlagðar. Hinsvegar er fráleitt, að t. d. innflutningur verzlunar, sem forseti ræki, nyti undanþágu frá innflutningsgjöldum, vörusala hans væri laus við söluskatt, né mundi verksmiðja, sem rekin væri á ábyrgð forseta, komast hjá því að borga gjald af innlendum tollvörutegundum framleiðslu sinnar, fram- leiðslugjald, söluskatt og annað þvílíkt. Nokkur vafi kann að vera á, hvernig fari, ef forseti kaupir innlendar framleiðsluvörur, sem skattskyldar eru. Ef talið er, að gjöldin séu lögð á framleiðendur eða selj- endur, verða þeir að greiða þau. En ef kaupandi er talinn gjaldskyldur, mundi forseti ekki þurfa að greiða gjald af slíkum kaupum. Vandinn er sá, að jafnvel þótt selj- andinn sé gjaldskyldur, mundi verðið geta lækkað, ef gjaldið félli niður og verðlækkunin þess vegna í þessu til- felli raunverplega verða forseta að gagni. I framkvæmd mun gjald hafa verið greitt af slíkri innlendri framleiðslu, þótt forseti sé kaupandi. IX. Svo sem fyrr segir, hefur forseti samkv. 12. gr. stjskr. aðsetur í Reykjavík eða nágrenni. Honum ber því að hafa heimilisfang sitt í embættisbústað þeim, sem ríkis- stjórnin fær honum á þessum slóðum með samþykki fjár- veitingavaldsins, og er það nú á Bessastöðum, svo sem kunnugt er. X. Forseti fslands hefur sérstakt merki samkv. forseta- úrskurði nr. 39, 8. júlí 1944, og sérstakan fána samkv. forsetaúrskurði nr. 40 8. júlí 1944. Þá er forseta með forsetabréfi nr. 42 11. júlí 1944 fengið vald um hina íslenzku fálkaorðu, án þess að atbeini ráðherra þurfi að

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.