Tímarit lögfræðinga - 01.12.1951, Page 16
230
Tímarit lögfrætiinga
koma þar til hverju sinni, og byggist það eflaust á því,
að þar sé eklci um eiginlega stjórnarathöfn að ræða.
XI.
I stjskr. er forseta Islands í orði kveðnu fengið mikið
vald, sbr. einkum I. og II. kafla stjskr., sbr. 79. gr. hennar.
I 2. gr. er gefið yfirlit um vald forseta, þar sem segir:
Alþingi og forseti Islands fara saman með löggjafarvaldið.
Forseti og önnur stjórnarvöid samkvæmt stjórnarskrá
þessari og öðrum landslögum fara með framkvæmdar-
valdið.
1) Forseti skipar ráðherra og veitir þeim lausn, á-
kveður tölu þeirra og skiptir störfum með þeim, sbr. 15.
gr. stjskr. Iiann veitir embætti, víkur mönnum frá og
flytur þá til, sbr.. 20. gr., gerir samninga við önnur ríki,
sbr. 21. gr., stefnir saman Alþingi og ákveður slit þess,
sbr. 22. gr., frestar fundum þess, sbr. 23. gr., rýfur Al-
þingi, sbr. 24. gr., lætur leggja frv. til laga og annarra
samþykkta fyrir Alþingi, sbr. 25. gr., staðfestir lagafrv.
eða synjar þeim staðfestingar, sbr. 26. gr., gefur út bráða-
birgðalög, sbr. 28. gr., ákveður, hvenær saksókn skuli
niður falla, náðar menn og veitir almenna uppgjöf saka,
sbr. 29. gr., veitir undanþágur frá lögum skv. 30. gr. og
skal staðfesta stjórnskipunarlagafrv. skv. 79. gr.
Forseti skipar ríkisráð ásamt ráðherrum og hefur þar
forsæti, sbr. 16. gr. stjskr.
Svo mætti ætla samkvæmt þessu, að vald forseta væri
mikið, en önnur ákvæði stjskr. draga mjög úr því.
2) Skv. 1. gr. stjskr. er hér lýðveldi með þingbundinni
stjórn, eftir 13. gr. lætur forsetinn ráðherra framkvæma
vald sitt og skv. 19. gr. veitir undirskrift forseta undir
löggjafarmál og stjórnarerindi þeim gildi, er ráðherra
ritar undir þau með honum, enda er forseti sjálfur á-
byrgðarlaus á stjórnarathöfnum, sbr. 11. gr., en ráðherrar
bera ábyrgð á stjórnarframkvæmdum öllum skv. 14. gr.
stjskr.
a. Það er því Ijóst, að forseti getur ekki beitt valdi sínu