Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1951, Side 18

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1951, Side 18
232 Tímarit lögfræSinga meðan þeir eru í stöðunum, jn-ðu þó formlega gildar, ef samþykki forseta kemur til. Forseti hefur þannig að vísu formlegt vald til skipunar ríkisstjórnar, en raunverulega er ætlazt til, að Alþingi ráði henni, því að annars verður ekki talið, að stjórn sé þingbundin. Það er mjög undir mati komið, hversu mikil skipti forseti eigi að hafa af stjórnarmyndun skv. þing- ræðisreglum, og mundi athugun á því til sæmilegrar hlítar verða of viðamikil fyrir þessa ritsmíð. Enda er það, hvað sem þessu líður, óhagganlegt, að forseti hefur formlega heimild til að skipa hverja þá ríkisstjórn, sem hann vill og löghæfir menn fást til að taka sæti í og þar með bera ábyrgð á. XII. 1) Forseti er ábyrgðarlaus á stjórnarathöfnum skv. 11. gr. stjskr. og samkvæmt 14. gr. eru það ráðherrar, sem bera ábyrgð á stjórnarframkvæmdum öllum. Það eru einungis stjórnarathafnir, sem forseti er á- bygðarlaus á. Um einkaathafnir sínar, þær, er ekki varða refsingu, verður forseti sóttur sem hver annar borgari. Ef hann hefur t. d. skrifað upp á víxil og vanrækt skyldur sínar samkv. því, er hægt að sækja hann í víxilmáli sem hvern annan. Barnsfaðernismál má höfða á hendur hon- um sem öðrum o. s. frv. 2) Skv. 2. mgr. 11. gr. stjskr. verður forseti þar á móti elcki sóttur til refsingar, nema með samþykki Alþingis. Til refsingar út af stjórnarathöfnum verður forseti alls ekki sóttur, þó að samþykki Alþingis komi til, því að á þeim er hann ábyrgðarlaus. Það er einungis, ef um er að ræða refsingu fyrir brot, sem hann hefur framið utan stjórnarathafna, hvort heldur áður en hann varð forseti eða á meðan hann er forseti, sem refsing kemur til greina. Ef um slíkt brot væri að ræða, mundi handhafi ákæru- valdsins verða að leita til Alþingis og fá samþykki þess. Eðlilegast væri, að það samþykki væri veitt með þings- ályktunartillögu í Sameinuðu þingi, en auðvitað mundi

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.