Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1951, Side 22

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1951, Side 22
236 Tímarit lögfræðinga Frá hæstarétti janúar—júní 1951 Lengstum hefur staðið mjög á útgáfu hæstaréttardóma. En nú er breytt til batnaðar, því að dómar ársins 1950 voru komnir fullprentaðir á fyrra hluta árs 1951. Er það skjót- virkri framkvæmd Prentsmiðju Austurlands að þakka. En um eitt er enn á fátt: Registur við hvert bindi (nú árgang dómanna) er, þegar þetta er ritað (í september 1951), ekki komið lengra en við árganginn 1946. Þetta veldur miklum baga, enda þótt nokkur bót sé að hinu örstutta bráða- birgðaregistri, sem fylgir árgöngunum 1947—1950. Seina- gangur á registrunum við árið 1947 og síðan stafa sjálf- sagt að miklu leyti af því, hversu torsótt var að fá dómana prentaða, þangað til Prentsmiðja Austurlands tók verkið að sér. Vonandi verður bráðlega ráðin bót á vöntun reg- istra við síðustu fjóra árgangana (1947—1950), sem nú hafa verið gefnir út. Á fyrra helmingi ársins 1951 hefur hæstiréttur haft til meðferðar eigi allfá merkileg mál og kveðið upp dóma í þeim. Skal nokkurra þeirra mála, sem telja má sérstak- lega eftirtakanleg, minnzt nokkuð. D ó M S K Ö P . 1. Dómar. Frávísun (hrd. 4/5). Frávísunarkröfu, um einn kröfulið af fleirum, sem að áliti hæstaréttar var ekki nægilega rökum studd, hafði héraðsdómari ekki tekið til greina. En í forsendum dóms hafði hann ekki lýst berum orðum viðhorfi sínu til kröf- unnar. Hæstiréttur telur það að vísu yfirsjón, að dómari rökstuddi ekki synjun sína á frávísunarkröfunm, en, „eins og á stendur", telur hæstiréttur þó ekki ástæðu til að láta „þessa handavömm" varða ómerkingu héraðsdóms, eins og áfrýjandi hafði krafizt. Mundi hæstiréttur hafa ómerkt

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.