Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1951, Síða 25

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1951, Síða 25
Frá hæstarétti janúar—jiíní 1951 230 aði héraðsdómari málinu því frá dómi með skírskotun til 116. gr. laga nr. 85/1936. Staðfesti hæstiréttur þá úr- lausn. 4. Sönnun í refsimáli (hrd. 12/5). Um kl. 9,45 að kveldi var ekið á konu á vegamótum Iiringbrautar og Ljósvallagötu í Reykjavík. Hlaut konan mikil lemstui’. Vitnin A og B kváðu bifreiðina hafa verið jeppa, græna að lit með litaskiptingu. Segja þau bifreiðinni hafa verið ekið mjög hart. Hafi Ijós verið slökkt á henni eftir áreksturinn og ekið síðan með miklum hraða burt. Vitnið A, sem er alvanur bifreiðastjóri, elti jeppann 1 bifreið sinni suður Melaveg að háskólanum, en þar sneri jeppinn til vesturs sunnan við íþróttavöllinn. Sneri A þá við, án þess að hann hefði séð einkennisstafi jeppans. Vitn- ið E mætti jeppanum, rétt er hann hafði farið af slysstaðn- um, og sá merki á hægri framrúðu hans, sem það hugði vera frostrósir, enda taldi vitnið, er það skoðaði síðar jepp- ann P 176, allt vera sama bílinn, en vildi þó ekki fullyrða, að svo væri, með því að það hafði ekki séð einkennisstafi jepp- ans. Þegar vitnið A var komið á gatnamót Melavegar og Hringbrautar, sá það jeppa með sama lit koma upp vestan við íþróttavöllinn og koma þaðan að Suðurgötu, og taldi vitnið það vera sama jeppann sem það hafði elt af slys- staðnum. Svo elti vitnið jeppann og náði einkennisbókstöf- um hans, sem hann taldi vera P 176. Annar maður sat frammi í hjá bílstjóranum. Síðan skildi vitnið við jeppann. Mjög um sama leyti sem slysið varð ók G í jeppanum P 176 um áðurnefnd gatnamót. Neitaði hann því, að hann hefði ekið á konuna, svo að hann til vissi, og að hann hefði ekið jeppanum suður Melana, vestur fyrir íþróttavöll- inn og kringum hann á Suðurgötu, heldur kvaðst hann hafa ekið þegar norður Suðurgötu og um bæinn, unz hann skildi jeppann eftir í Grófinni. Fór G síðan á dansleik og félagi hans, J, sem sat frammi í jeppanum hjá honum. Þegar hann ætlaði að taka jeppann aftur, þá var hann horfinn þaðan, en svo hitti G jeppa sinn í porti lögreglunnar. Fékk G þá

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.