Tímarit lögfræðinga - 01.01.1957, Síða 16
taldir fullgildir félagar og eru þvi taldir aukafélagar,
unz þeir hafa gert full skil á árgjöldum sínum. Othlut-
unarnefnd skal að sjálfsögðu krefjast vottorðs félags-
stjórnar um það, hvort hlutaðeigandi umsækjandi um
bætur er fullgildur félagi eða ekki.
3. Launþegi skal hafa stundað vinnu, sem goldin er
samkvæmt kjarasamningi eða kauptaxta verkalýðsfélags
samtals a.m.k. 6 mánuði á síðustu 12 mánuðum, sbr.
15. gr.b. Visast til III. l.b. um skilgreiningu á orðinu
verkalýðsfélag. Jafngilt vinnu, goldinni samkvæmt kjara-
samningi eða kauptaxta, er vinna um stundarsakir við
hliðstæð störf, t. d. kaupavinna. Þetta ákvæði tryggir
ekki, að iðgjald hafi verið greitt umrætt tímabil vegna
bótaþegans, þegar af þeirri ástæðu, að kaupavinna, sem
að jafnaði er ekki greitt iðgjald af, telst jafngild vinnu,
sem goldin er samkvæmt kjarasamningi eða taxta,
a.m.k. um stundarsakir. Þar að auki er ýmis vinna
goldin samkvæmt kjarasamningi eða kauptaxta, sem ekki
er að jafnaði greitt iðgjald af, t. d. ef unnið er utan
kaupstaða eða kauptúna með 300 íbúa eða fleiri, sbr.
III. 2.b. Það verður því alls ekki talið, að iðgjaldagreiðsl-
ur vegna umsækjanda um bætur sé skilyrði fyrir bóta-
rétti honum til handa. Hinsvegar mun að jafnaði hafa
verið greitt iðgjald vegna þeirra, sem bótarétt fá. Vott-
orð það frá vinnumiðlun, sem gert er ráð fyrir i c-lið
15. gr. sýnir, hvort umsækjandi fullnægir skilyrði þvi,
sem hér um ræðir eða ekki.
4. Umsækjandi verður að hafa verið atvinnulaus
a.m.k. 36 virka daga á síðastliðnum 6 mánuðum, þar af 9
daga á síðustu 18 dögum. Heimild til handa úthlutunar-
nefnd er í 17. gr. 1. mgr. til þess að ákveða, að bóta-
greiðsla skuli hefjast þótt ekki sé fullnægt skilyrðinu
um 36 atvinnuleysisdaga á siðustu 6 mánuðum. Þessi
heimild er þó bundin þvi skilyrði, að umsækjandi hafi
átt við að stríða algert og samfellt atvinnuleysi síðustu
18 daga virka. Þegar málin eru þannig vaxin, getur út-
10
Tímarit lögfræðinga