Tímarit lögfræðinga - 01.01.1957, Page 26
2. Heilbrigðismáladeild. Hún er skipuð landlækni,
sem er formaður deildarinnar, kennaranum í heilbrigðis-
fræði við háskólann og yfirlækni lyflæknisdeildar Land-
spítalans.
3. Siðamáladeild. Hún er skipuð læknaráðsmanni
sérstaklega til þess kjörnum af lælcnaráði, og er hann
formaður deildarinnar, kennaranum í réttarlæknisfræði
við háskólann og formanni Læknafélags íslands.
Deildaskipting ráðsins byggist á heimild i 6. gr. 1., þar
sem ráðinu er heimilað að fela tveim eða fleiri lækna-
ráðsmönnum afgreiðslu máls í sínu umboði, enda heyri
málið undir sérgrein eins eða fleiri þeirra, er um það
fjalla.
Samkvæmt 1. mgr. 2. gr. 1. er það hlutverk lækna-
ráðs að láta dómstólum, ákæruvaldi og stjórn heilbrigðis-
mala i té sérfræðilegar umsagnir varðandi læknisfræði-
leg efni. 1 2.—1. mgr. sömu gr. er hlutverk ráðsins
rakið nánar, sbr. hér á eftir. Skv. 1. mgr. 3. gr. 1.
lætur læknaráð elcki önnur mál til sín taka en þau, er
borin liafa verið undir það skv. 2. gr. og af þeim aðilum,
er þar greinir.
Skal nú leitazt við að skýra starfsháttu og hlutverk
hverrar deildar.
1. Réttarmáladeild fjallar um réttarmál, sem ber und-
ir læknaráð, sbr. 3. gr. rg. Undir þá deild heyra eingöngu
mál, sem borin eru undir ráðið af dómstólum og ákæru-
valdi, en aldrei mál, sem borin eru undir það af stjórn
heilbrigðismála.
Samkv. 2. mgr. 2. gr. 1. lætur ráðið meðal annars í
té umsagnir um hvers konar læknisvottorð, sem lögð
eru fyrir dómstólana, enda sé þeim beint til ráðsins sam-
kvæmt úrskurði dómara.
Samkvæmt 2. mgr. 3. gr. 1. lætur læknaráð ekki í
té umsögn um andlegt ástand eða sakhæfi manns, nema
áður liggi fyrir álitsgerð sérfræðings eftir viðeigandi at-
hugun, enda sé kostur slíkrar athugunar, og skv. 3. mgr.
20
Tímarit lögfrœðinga