Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.06.1958, Page 37

Tímarit lögfræðinga - 01.06.1958, Page 37
III. Eins og getið er liér að framan eru í sáttmálanum ákvæði um stofnanir, sem eiga skulu hlut að og tryggja eftir föngum og innan þess ramma, sem þeim er settur, að aðildarrikin standi við skuldbindingar þær, sem þau hafa bundizt með sáttmálanum. Eru það mannréttinda- nefnd Evrópu og mannréttindadómstóll Evrópu. I mann- réttindanefndinni eiga sæti einn maður frá hverju aðild- arríki, kosnir til 6 ára af ráðherranefnd Evrópuráðsins, þannig að lielmingur nefndarmanna er kosinn á þriggja ára fresti. Hvert aðildarriki getur vísað til nefndarinnar hvers konar hroti á ákvæðum sáttmálans, sem það telur annað aðildarríki liafi framið. Þá getur nefndin og tekið við er- indum frá hvaða einstaklingi eða hópi einstaklinga sem er, sem heldur því fram, að aðildarríki liafi brotið á þeim réttindi þau, sem sáttmálinn fjallar um, enda hafi aðild- arriki það, sem kært er, lýst því yfir, að það viðurkenni, að nefndin sé bær til að fjalla um slík erindi. Níu aðildarrikjanna hafa þegar gefið slíka yfirlýsingu, Norðurlöndin fjögur, Vestur-Þýzkaland, Belgía, Luxem- burg, Irland og Austurríki. Engu máli skiptir um þjóð- erni þess manns, sem hefur uppi kæru á hendur þessum ríkjum fjrrir nefndinni, hvort hann er þegn Evrópuríkis eða ekki eða hvort hann er ríkisfangslaus. Mannréttindanefndin er þó ekki slíkur milliríkjadóm- stóll, að heimilt sé að skjóta til hennar hvaða mannrétt- indamáli sem er, án alls fyrirvara. Samkvæmt 26. gr. sátt- málans má nefndin einungis taka til meðferðar mál, sem leitað hefur verið til hlitar leiðréttingar á í heimalandinu, samkvæmt almennt viðurkenndum þjóðréttarreglum, og innan 6 mánaða frá því, að fullnaðar ákvörðun var þar tekin. Telji nefndin, aö henni beri að taka til meðferðar mál, sem til hennar er skotið, skal hún rannsaka það efnislega ásamt fulltrúum deiluaðila og gera tilraun til að koma á Tímarit lögfrœöinga 83
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.