Tímarit lögfræðinga - 01.06.1958, Síða 41
skýringar eða framkvæmd sáttmálans, enda hafi nefnd-
inni ekki tekizt að koma á sáttum i málinu. Málskot til
dómstólsins skal fara fram innan þriggja mánaða frá því
skýrsla um mál var send ráðherranefndinni. tlrlausn dóm-
stólsins skal vera fullnaðarúrlausn sakarefnis og hafa ríki
þau, sem viðurkenna lögsögu dómstólsins, gengizt undir
að hlíta henni i hverju því máli, sem þau eiga aðild að.
Eftirlit með framkvæmd dómsúrlausnanna hefur ráð-
herranefnd Evrópurráðsins.
Dómstóll þessi hefur enn ekki verið stofnaður. Skilyrði
fyrir stofnun hans er að a. m. k. 8 af aðildarríkjum Ev-
róþuráðsins hafi viðurkennt lögsögu hans. Það var ekki
fvrr en hinn 3. september s.l. að tölu þessari varð náð.
Islenzka rikið var hið áttunda í röðinni, sem viðurkenndi
lögsögu dómstólsins og var hið islenzka viðurkenningar-
skjal afhent aðalforstjóra Evrópuráðsins hinn 3. sept. s.l.
Þann dag voru liðin 5 ár frá því mannréttindasáttmálinn
geklc i gildi. Var þess minnzt við hátíðlega athöfn í húsi
Evrópuráðsins á heimssýningarsvæðinu i Brussel. Fór af-
hending hins íslenzka viðurkenningarskjals þar fram. Haf-
inn er nú undirbúningur að stofnun dómstólsins, og er
líklegt að hann geti tekið til starfa á næsta ári.
V.
Hér hefur verið reynt í örstuttu máli, að gera grein fyr-
ir tilraun, sem allmörg ríki i Evrópu eru að gera, til þess
að tryggja mannfrelsi og ýmis almenn mannréttindi fóllci
því, sem þau byggir. Tilraun þessi er þess eðlis, að vert er
að veita henni athvgli, og allir myndu óska, að hún heppn-
aðist sem bezt. Aðildarríki Evrópuráðsins hafa markað
sér sameiginlega stefnu i mannréttindasáttmálanum og
samstöðu um verndun lýðræðis og hornsteina þess, sem
sáttmálinn fjallar um. I fvrsta skipti i sögu mannkvnsins
hefur verið og er verið að koma á fót stofnunum, með
millirikjasamningum, til þess að varðveita frelsi einstak-
linga og almenn mannréttindi. Ýmis ríki vestur Evrópu,
Tímarit lögfræöinga
87